Eyravegur 26
01-0211 · 800 Selfossi



15 dagar á sölu
32.500.000 kr
928.571 kr/m²
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Eyrarvegur 26, íb. 211 Selfossi. Í einkasölu.
Um er að ræða snyrtilega stúdóíbúð. Íbúðin er með sérinngangi og er 32,7 fm. auk geymslurýmis sem er 2,2 fm. Að innan skiptist íbúðin í forstofu, baðherbergi og rúmgott alrými þar sem m.a. er eldhúsaðstaða. Flísar eru á öllum gólfum og gólfhiti. Á baðherberginu er innrétting, sturta, wc og handklæðaofn. Í forstofu er fataskápur.
Verið er að byggja þriðju hæð hússins ofan á það og samhliða því verður húsið klætt að utan. Þak er slétt en á því er þakdúkur undir fargi. Hitalagnir eru í stéttum og svölum húsins. Lyfta er í húsinu. Í sameigninni er gangur í gegnum húsið og þar er þvottaaðstaða með sameiginlegum þvottavélum og þurrkurum á neðri hæð. Malbikað bílaplan er fyrir framan húsið og einnig að baka til.Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir




