HÚSASJÁ

Járnslétta 2

01-0101 · 162 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

90 m²

Stærð

1

Baðherbergi

4229 m²

Lóð

Geymsla



302 dagar á sölu

sell

44.100.000 kr

488.914 kr/m²

Bílaverkstæði - Bónstöð - Heildsala - Flutningastarfsemi - Framleiðsla - Verktakar - Ferðaþjónusta - Dótakassi eða Geymsla.

Borg fasteignasala kynnir: Endabil við Járnsléttu 2. Ný iðnaðarbil sem verða afhent fullbúin. Húsið er skráð atvinnuhúsnæði og uppfyllir allar kröfur sem þarf til að stunda létta iðnaðar- og atvinnustarfsemi. Olíuskilja er í húsinu. Hvert iðnaðarbil verður afhent með fullbúnu salerni. Möguleiki er að setja upp milliloft.

Bilið er laust til afhendingar við kaupsamning.

Iðnaðarbil nr. 101.

Nánar:

Járnslétta er vandað iðnaðarhúsnæði með 22 iðnaðarbilum. Undirstöður hússins eru steynsteyptar og burðargrind er úr stáli. Lóð hússins er malbikuð og er gert ráð fyrir tveimur merktum bílastæðum fyrir framan hvert bil. Innkeyrsluhurð er 3 x 4,5m og er með rafopnun. Lofthæð við útvegg er um 6 metrar og rúmir 8 metrar við hæsta punkt í miðju hússins. Sjá nánar um húsnæðið og afhendingu í skilalýsingu seljanda sem fylgir söluyfirliti.

Upplýsingar veitir Davíð Ólafsson fasteignasali í síma 897-1533 eða david@fastborg.is

Gjöld sem kaupandi greiðir við kaupin:

- Kaupandi greiðir skipulagsgjald skv., gjaldskrá RVK, nú 0,3 % af brunabótamati, þegar það er innheimt.

- Kaupendur þurfa að gera ráð fyrir yfirtöku á vsk. kvöð sem mun vera áhvílandi á eignunum. Kaupendur sem ekki eru í vsk skyldri starfsemi geta greitt upp vsk. kvöðina við kaupasamning. Áætluð vsk kvöð á billi 101 er kr. 6.901.871.-

- Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6 % af heildarfasteignamati.

- Þinglýsingargjald kaupsamnings, veðskuldabréfs, hugsanlegt veðleyfi o.fl.

- Lántökugjald lánastofnunar.

- Umsýslugjald vegna fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Kort af Járnslétta 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu