HÚSASJÁ

Elliðabraut 6

01-0413 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

160 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2021

Byggingarár

8086 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla



492 dagar á sölu

sell

127.900.000 kr

796.885 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

**Opið hús miðvikudaginn 11. mars milli kl. 17:00 og 17:30**

Fjögurra til fimm herbergja samtals 160,5m² íbúð á efstu hæð með þrennum svölum þar af einum stórum 45fm þaksvölum sem ná suður og vesturátt.  Bílskúr fylgir (24,5fm) ásamt stæði í lokaðri bílageymslu. Aukin lofthæð eða 2,9 m. Vandaðar innréttingar eru í allri íbúðinni sem ná allar upp i loft, framleiðandi er VOKE-III.

Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 160,5m², flatarmál íbúðarrýmis er 131m², bílskúr er 24,5m² og flatarmál geymslu er 5m².

Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi (möguleiki að bæta við fjórða svefnherberginu), tvö baðherbergi, öðru með þvottaaðsstöðu, alrými með stofu, borðstofu, eldhúsi. Bílastæði og bílskúr í bílakjallara

Nánari lýsing:

Forstofa með góðum fataskáp.

Frá forstofu er gengið inn í herbergi með fataskáp.

Eldhús, stofa og borðstofa eru í stóru samliggjandi rými. Í Eldhúsi er stór eyja með helluborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél í innréttingu. Bakarofn og örbylgjuofn í vinnuhæð. Frá eldhúsi er gengið út á 45 fm þaksvalir

Borðstofa er rúmgóð og þaðan er gengið út á svalir sem snúa inn í inngarðinn.

Frá stofu er gengið út á þriðju svalirnar en þær snúa til austurs.

Innaf stofu er herbergi með fataskáp.

Hjónaherbergi með fataskápum. Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með sturtu, vegghengdu salerni, handklæðaofn, innréttingu og speglaskáp.

Aðalbaðherbergið er flísalagt á gólfi og veggum að hluta. Flísalögð sturta með glerskilrúmi og handklæðaofn. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara auk skápa.

Bílskúr fylgir íbúðinni og er hann í bílageymslunni. Bílastæði framan við bílskúrinn. Hleðslustöð fyrir rafbíl.

Í sameign á neðstu hæð er stór hjólageymsla og vagnageymsla.

Gólfefni eru vandað vínilparket frá Agli Árnasyni og flísar á baðherbergjum.

Norðlingaholtið er sérlega fjölskylduvænt hverfi sem heldur vel utan um þig og þína. Náttúruparadísin Heiðmörk, Rauðavatn, Paradísardalur og Elliðaárdalur eru í göngufæri með ótal göngu- og hjólaleiðum. Hverfið er byggt í hring umhverfis skólann, sem veitir aukið öryggi fyrir yngstu íbúa hverfisins.

Nánari uppl.

Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Elliðabraut 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu