HÚSASJÁ

Elliðabraut 6

01-0217 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

156 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2021

Byggingarár

8086 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



355 dagar á sölu

sell

121.900.000 kr

783.923 kr/m²

Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Falleg og frábærlega vel skipulögð 5 herbergja íbúð merkt 0217 á jarðhæð (skráð 2.hæð) með svölum og stórum sérafnotareiti og stæði í lokaðri bílageymslu.  sérafnotareiturinn er 96,9fm fyrir framan húsið og gengið er út á hann frá alrými íbúðarinnar. Eignin skiptist í: forstofu, alrými sem rúmar, stofu, borðstofu, og eldhús með búri, 4 góð svefnherbergi og tvö baðherbergi (bæði með sturtu og annað baðherbergið er með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla og stæði í bílakjallara eru í sameign á 1.hæð hússins ásamt hjóla og vagnarými.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:

Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar:

Gengið er að aðalinngangi hússins a 2.hæð beint af bílaplani. Frá anddyri og stigagangi hússins er gengið út á utanáliggjandi svalagang sem er í miðjuhring hússins. Íbúðin er á enda svalagangsins og því engin önnur íbúð sem gengur upp að henni.

Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með glugga og fjórföldum breiðum fataskáp sem nær upp í loft og veggja á milli. Harðparket er á gólfi.

Gangur: Komið er inn á gang frá forstofunni sem liggur að alrými íbúðarinnar. Út frá ganginum er aðalbaðherbergið og þrjú af svefnherbergjunum (barnaherbergin).

Aðalbaðherbergi: Aðalbaðherbergi íbúðarinnar er á gangi á móti forstofunni. Baðherbergið er rúmgott með glugga. Rúmgóð sturta er beint á gólfi með hertugleri. Góð innrétting er undir vaskaborði sem er úr steini með innbyggðum vaski. Fyrir ofan vask er speglaskápur með lýsingu. Innfellt í vegg við hliðina á innréttingunni er rými fyrir þvottavél og þurrkara og fyrir ofan vélarnar er skápur sem nær upp í loft. Fallegar gráar flísar eru á gólfi og á veggjum í sturturými. Handklæðaofn er á vegg.

Setustofa + borðstofa: Setustofa og borðstofa eru saman í opnu rými með glugga á þrjá vegu sem gera rýmið einstaklega bjart og opið. Eldhúsið er samliggjandi borðstofunni í opnu rými frá stofunni. Harðparket er á gólfi. Gengið er út á tæplega 100 m2 sérafnotareit sem fylgir íbúðinni frá stofunni.

Eldhús + búr: Fallegar innréttingar frá Voke-III eru í eldhúsinu þar sem er innrétting á einn vegg með efri og neðri skápum ásamt eyju sem skilur eldhúsið frá borðstofunni. Fyrir aftan eldhúsið er gengið inn í gott búr með miklu skápaplássi ásamt vinnuvaski og hillum. Hægt er að tengja auka uppþvottavél í búrinu eða breyta því í þvottaherbergi ef aðilar kjósa það. Gengið er út á svalir sem snúa inn í lokaðan sameiginlegan hring þar sem svalagangurinn inn að íbúðinni liggur frá eldhúsinu.

Hjónaherbergi + baðherbergi: Hjónaherbergi er rúmgott við hlið borðstofunnar. Í hjónaherberginu eru mjög góðir fataskápar sem ná upp í loft og harðparket á gólfi. Inn af hjónaherberginu er sér baðherbergi. Baðherbergið er með góðri innréttingu undir vaskaborði sem er með steinborðplötu og vaski. Fyrir ofan vaskaborðið er tvöfaldur speglaskápur. Sturta er í enda rýmisins með glervegg og gler rennihurð. Fallegar gráar flísar eru á gólfi og inni í sturturýminu. Salernið er upphengt með innbyggðum vatnskassa í vegg.

3 x barnaherbergi: Barnaherbergin eru þrjú öll rúmgóð með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft.

Geymsla: Í sameign er sér geymsla sem fylgir íbúðinni ásamt hjóla- og vagnageymsla.

Bílageymsla: íbúðinni fylgir stæði i bílageymslu.

Hverfið: Norðlinaholtið er sérlega fjölskylduvænt hverfi sem heldur vel utan um þig og þína. Náttúruparadísin Heiðmörk og  Elliðadalurinn eru í göngufæri með ótal gönguleiðum.

Skóli og menntun: Skólinn í Norðlingaholti hefur hlotið mikið lof og hefur fengið menntaverðlaun árið 2009. Hverfið er byggt í hring umhverfis skólann, sem veitir aukið öryggi fyrir yngstu íbúa hverfisins.

Verslun: Í göngufæri frá húsinu er ný stór Bónus-verslun.

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Kort af Elliðabraut 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu