HÚSASJÁ

Kiðjaberg 22

Lóð · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
7 myndir

7080 m²

Lóð



357 dagar á sölu

sell

15.000.000 kr

Betri Stofan fasteignasala og Jason Kristinn sími 7751515 jason@betristofan.is kynna:

Kiðjaberg Hlíð nr. 22,

Rúmlega 7000 fm eignarlóð í næsta nágrenni við golfvöll. Stutt frá Selfoss.

Sumarbústaðalóðir til sölu í einstöku umhverfi, fallegt útsýni í allar áttir. Fjölskrúðugt fuglalíf og mikil náttúrufegurð.

Kiðjabergs golfvöllurinn er í næsta nágrenni, einnig er par fimm æfingavöllur, rólur og fótbolta-golf nálægt gamla bænum í Kiðjabergi. Veiði og vatnasport í Hestvatni og tjaldsvæði á frábærum stað við vatnið.

​

Tíu mínútna akstur að sundlauginni á Minni Borg.

Stutt í Kerið, Öndverðarnes, Skálholt, Þingvelli, Laugarvatn, Flúðir, Gullfoss og Geysi. Í nálægð við Lingdalsheiði, Skjaldbreið og Langjökul sem býður upp á útiveru allan ársins hring.

​

Heitt og kalt vatn, rafmagn og gott netsamband við NOVA.

Allar nánari upplýsingar gefa:

Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Kiðjaberg 22

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð