Efstaleiti 29
01-0101 · 230 Reykjanesbæ



81 dagar á sölu
109.000.000 kr
742.507 kr/m²
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu nýlegt 146fm raðhús þar af 33fm innbyggður bílskúr við Efstaleiti 29, 230 Reykjanesbæ.
Eignin er mjög vel staðsett, mjög stutt er í leikskóla, þá eru grunnskóli og framhaldsskóli ásamt sundlaug í göngufæri. Verslunarmiðstöðin við Krossmóa og Reykjaneshöllin eru í næsta nágrenni.
Forstofa er flísalögð, þar er góður skápur og innangengt í bílskúr með geymslu.
Stofa hefur parket á gólfi, útgengt á stóra verönd með heitum potti. Opið rými með eldhúsi.
Eldhús myndar skemmtilegt opið rými með stofu og borðstofu með gólfsíðum gluggum. Eyja er í eldhúsi, helluborð með gufugleypi, kæliskápur með frystihólfi, uppþvottavél og ofn.
Svefnherbergin eru tvö og hafa þau bæði fataskápa og parket á gólfi.
Baðherbergið hefur flísar á gólfi og þar eru góð innrétting, sturtuklefi, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús hefur flísar á gólfi og góða innréttingu með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr hefur epoxy á gólfi, geymsla er innst í bílskúr og þar fyrir ofan er gott geymsluloft.
*Hiti er í öllum gólfum.
*Allar innréttingar eru frá Gks.
*Innkeyrsla er hellulögð með hitalögn.
Nánari upplýsingar veita:
Guðlaugur H.Guðlaugsson Löggildur fasteignasali, í síma 863 0100, laugi@studlaberg.is.
Haraldur F. Guðmundsson Löggildur fasteignasali, í síma 6619391, halli@studlaberg.is
Halldór Magnússon Löggildur fasteignasali, í síma 8634495, dori@studlaberg.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



























