HÚSASJÁ

Valshlíð 16

01-0226 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

79 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

6759 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla



555 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

1.017.834 kr/m²

Höfði fasteignasala kynnir stórglæsilega, nýlega og bjarta 2. herbergja íbúð í vönduðu og fallegu fjölbýlishúsi við Valshlið. Íbúðin er á 2. hæð með sérinngangi úr inngarði. Aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar í stofu. Einkastæði með hleðslustöð í bílakjallara. Geymsla er rúmgóð með tvöfaldri lofthæð og millilofti. Svalir með útsýni til Esjunnar.  Byggingin er viðhaldslítil, húsið er klætt að utan með álklæðningu. Frábær staðsetning í skammt frá háskóla, Nauthólsvík, Öskjuhlíð og miðbæ Reykjavíkur.  Mjög falleg íbúð sem er gott sem ný!

*** Skipti möguleg á eign í efri byggðum 113, 110 og fl.***

Nánari lýsing:

Forstofa með innbyggðum fataskáp.

Svefnherbergið er rúmgott með innbyggðum fataskáp og harðparketi á gólfi.

Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, opinn sturtuklefi, falleg innrétting með quartzborðplöt, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn og upphengt salerni.

Eldhúsið er opið inn í stofu. Falleg innrétting með quartzborðplötu.  Innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti fylgja.  Led lýsing undir efri skápum og Miele spanhelluborð með viftu yfir og Miele bakarofn.

Stofa/borðstofa með harðparketi á gólfi, gólfsíðir gluggar og útgengi út á svalir með fallegu útsýni.

Sérgeymsla í sameign með tvöfaldri lofthæð.

Lóð: Bílastæði er staðsett í bílageymslu með sjálfvirkum opnara og hleðslustöð. Garðurinn er glæsilegur, falleg hönnun og einstakur sælureitur með góðu skjóli. Upphitaðar gönguleiðir að hluta til með snjóbræðslu í inngarði.

Umhverfið: Stutt er að fara til að njóta náttúrunnar í fallegu umhverfi við Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Einnig er stutt á marga af stærri vinnustöðum og háskóla, reiðhjóla og gönguleiðir og skammt frá miðborg Reykjavíkur.

Hringdu núna og bókaðu tíma í einkaskoðun hjá Ásmundi Skeggjasyni as@hofdi.is, Gsm 895 3000.- eða Kristinn Tómasson, kristinn@hofdi.is, Gsm 820 6797.-

Kort af Valshlíð 16

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu