Langahraun 2
01-0101 · 810 Hveragerði



13 dagar á sölu
73.800.000 kr
727.811 kr/m²
Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali kynna í einkasölu bjart og vel skipulagt endaraðhús innst í rólegum botnlanga.
Eignin er skráð 101,4 fm og skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, eldhús, borðstofu/stofu, baðherbergi og þvottahús.
Alrými samanstendur af eldhúsi og borðstofu/stofu. Úr stofu er útgengt út í garð.
Hvít HTH innrétting með eyju er í eldhúsi, þar er innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni.
Baðherbergi er flísalagt að hluta. Þar er hvít vaskinnrétting, speglaskápur, sturta, upphengt klósett og handklæðaofn.
Gengið er af baðherbergi inn í þvottahús, rennihurð er á milli baðherbergis og þvottahúss.
Í þvottahúsi er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Harðparket er á öllum gólfum nema í anddyri, á baðherbergi og í þvottahúsi, þar eru flísar.
Gólfhiti og innfelld ljós eru í íbúðinni.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


















