HÚSASJÁ

Þverholt 21

01-0304 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

46 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

1713 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta



2 dagar á sölu

sell

50.900.000 kr

1.106.522 kr/m²

** Opið hús Xdaginn 00. mars frá kl. 00:00 til 00:00 - Þverholt 21 - íbúð 304 - Laus við kaupsamning - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 46 m2, 2ja herbergja endaíbúð á 3. hæð í lyftuhúsi við Þverholt 21 í Mosfellsbæ. Svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Húsið er byggt árið 2020. Frábær staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ þar sem stutt er í alla þjónustu. Eignin afhendist með öllum eldhústækjum: Ísskáp, uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og viftu. Einnig fylgir þvottavél og þurrkari. Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:

Forstofa er með harðparketi á gólfi og hvítum HTH fataskáp.

Stofa og eldhús í opnu rými með harðparketi á gólfi. Hvít HTH eldhúsinnrétting. Í innréttingu er bakaraofn, tveggja hellu keramik helluborð, vifta, lítill ísskápur, uppþvottavél, þvottavél og þurrkari. Stærri ísskápur kæmist fyrir í innréttingu þar sem nú er lítill ísskápur og þurrkari. Úr stofu er útgengt á svalir í suðvesturátt.

Svefnherbergi er með harðparketi á gólfi og hvítum HTH fataskápum með góðu skápaplássi.

Baðherbergi er með vinildúk á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, handlaug, sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni.

Íbúðinn fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð.

Húsið er einangrað að utan og klætt með bárujárnsklæðingu. Stigagangur er teppalagður og Schindler lyfta í stigahúsinu. Húsið stendur á sameiginlegri lóð fyrir Þverholt 21-23. Lóð er fullfrágengin, snjóbræðsla er í gönguleið að húsi. Djúpgámar fyrir sorp eru staðsettir miðsvæðis á lóðinni. Húsið er hannað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Byggingaraðili er Byggingafélagið Bakki ehf.

Verð kr. 50.900.000 ,-

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Kort af Þverholt 21

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð