HÚSASJÁ

Víðidalur 66

01-0102 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

103 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

1835 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



17 dagar á sölu

sell

73.900.000 kr

712.633 kr/m²

Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:

Víðidal 66, 260 Reykjanesbær

Fjögurra herbergja raðhús á einni hæð. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, sjónvarpshol með möguleika á þriðja herbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar. Útgengt er á timburverönd með skjólveggjum og heitum potti með fallegu útsýni til norðurs. Með eigninni fylgir sjálfstætt öryggiskerfi frá Securitas.

Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 103.7 m².

Eign merkt 01-02, fastanúmer 250-8390 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari lýsing á skipulagi:

Anddyri með fataskáp.

Eldhús með sérsmíðaðri svatri innréttingu og með ljúflokunarbúnaði á skúffum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Bakaraofn, spanhelluborð, og háfur með kolasíu.

Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu alrými með útgengi á timburlagða verönd með skjólveggjum og heitum potti.

Sjónvarpshol er rúmgott og auðvelt að breyta í þriðja svefnherbergi.

Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum.

Herbergi er inn af forstofu með fataskáp.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu með innbyggðum blöndunartækjum.

Þvottaaðstaða er á baðherbergi með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla er innan íbúðar.

Innréttingar eru í eldhúsi og á baðherbergi, auk fataskápa í forstofu og herbergjum. Úthliðar innréttinga eru í svörtu viðaráferð Nero Oak frá GKS.

Gólf eru flísalögð með parketflísum í almennum rýmum og herbergjum en votrými eru flísalögð með 60×60 flísum.

Byggingarlýsing:

Húsið er byggt árið 2020 og er klætt báruklæðningu og með timburgluggum. Þak er klætt með AluZink og stálrennum með hvítum niðurföllum. Þakkantar eru úr bandsöguðu timbri og hvítmálaðir. Útihurðir eru frá Porta Doors.

Hitalagnir eru hefðbundnar ofnalagnir og neyslulagnir úr ryðfríum efnum. Raflögn er fullfrágengin með innbyggðri LED lýsingu í alrými. Strengur fyrir rafhleðslustöð er ídreginn að framan og lögn tilbúin að aftan.

Lóð og aðkoma:

Að framanverðu er innkeyrslan er hellulögð með hitalögn í gönguleið ásamt blómakerjum á milli húsa. Skjólveggur er við anddyri. Botnlangi er malbikaður. Að aftan er timburverönd með skjólveggjum og heitum potti. Lóð er að öðru leyti tyrfð og frágengin.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / valgeir@valny.is

Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.

Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.

Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook

Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.

- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.

Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Kort af Víðidalur 66

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29