Sunnubraut 22
01-0101 · 870 Vík



81 dagar á sölu
104.000.000 kr
542.231 kr/m²
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-5028.
EINBÝLISHÚS MEÐ BÍLSKÚR VIÐ SUNNUBRAUT 22 Í VÍK.
Húsið er byggt úr timbri og er klætt að utanverðu með liggjandi álklæðningu og timburklæðningu að hluta. Eignin telur: Anddyri með flísum á gólfi og skáp. Sambyggt eldhús og stofu með flísum á gólfi og vandaðri innréttingu með ofni, uppþvottavél og stórum frysti- og kæliskáp. Úr rýminu er hurð út á verönd. Gang með flísum á gólfi. Fjögur svefnherbergi með flísum á gólfum og skápum. Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, stórri sturtu, innréttingu og handklæðaofni. Inn af anddyri er annað baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu og innréttingu. Þvottahús, sem jafnframt er bakinngangur í húsið með flísum á gólfi og innréttingu. Bílskúrinn er með flísum á gólfi, innkeyrsluhurð með opnara og í honum er geymsla með flísum á gólfi. Í húsinu eru gólfhitalagnir, kyntar með rafmagni. Við húsið er timburverönd með skjólveggjum, rafkyntum heitum potti, saunatunnu og útisturtu. Einnig er á lóðinni stór hellulögð verönd og gangstétt og malbikað bifreiðastæði. Á lóðinni er enn fremur um 15 fm garðhús úr timbri, einangrað og klætt að innan með panel og flísum á gólfi. Rafkynding er í húsinu.
Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877 og getfang: agust@fannberg.is
Guðmundur Einarsson, lgf, gsm: 863-9528 og netfang: gudmundur@fannberg.is.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna

































