Víkurbraut 17
01-0301 · 230 Reykjanesbæ



38 dagar á sölu
94.900.000 kr
823.070 kr/m²
Stuðlaberg fasteignsala kynnir í einkasölu glæsilega 115fm íbúð (301) í nýlegu fjölbýlishúsi við Víkurbraut 17 í Keflavík.
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, baðherbergi, þvottahús, tvö svefnherbergi, eldhús, lokaðar svalir ásamt sér geymslu og merktu bílastæði í bílakjallara hússins.
Forstofa er flísalögð með póstkössum og mynddyrasíma. Rafdrifnar rennihurðir með skynjurum eru fyrir anddyri. Þaðan er gengið að stiga, lyftu og inn á íbúðargang.
Hol/gangur hefur parket á gólfi, þar er góður skápur.
Baðherbergi þar er Innréttingin er dökk með Corian borðplötu og handlaug. Innbyggt blöndunartæki.Góður spegill fyrir ofan vask. Salernið er hvítt með innbyggðum vatnskassa. Glæsilegur flísalagður sturtubotn með niðurfallsrennu og glerhlið úr hertu gleri. Veggir eru flísalagðir upp í ca. 2 metra.
Svefnherbergin eru tvö og hafa parket á gólfi og skápur er í þeim báðum.
Eldhús og stofa eru eitt rými og hafa parket á gólfi, falleg innrétting og eyja er í eldhúsi, úr stofu er útgengt á lokaðar svalir með frábæru útsýni.
þvottahús hefur flísar á gólfi, góða innréttingu með skolvask.
*Sorpgeymsla, hjóla- og vagnageymsla er með epoxy á gólfum.
*Allir veggir og loft í sameign eru máluð. Hiti er í gólfum.
*Eigninni fylgja 9,5m² yfirbyggðar svalir og sérmerkt stæði í bílageymslu.
*stigahús er teppalagt.
Almenn atriði
Víkurbraut 17 er fjölbýlishús á 9 hæðum. Fyrst er bílageymslan með innkeyrslu frá Bakkastíg þá geymsluhæð með geymslum og einni íbúð, 1.-5. hæð með þremur íbúðum á hverri hæð og loks 6.-7. hæð með tveimur penthouse-íbúðum. Lyfta er í húsinu og nær hún frá bílageymslu og upp á 6. hæð.
Ytri frágangur og lóð
Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin svo og bílastæði. Að utan er húsið einangrað með steinull og klætt með flísum, báruáli og sléttu áli. Þak yfir 6. hæð og bílageymslu er steinsteypt með tvöföldum pappalagi, einangrun, hitaspíral og hellulagt er þar ofan á. Þak yfir 7. hæð sem er inndregin er klætt báruáli.
Svalir eru steinsteyptar, með hitaspíral og innfrarauðum geislahitara. Handrið er úr áli og klætt hertu gleri sem er opnanlegt ofan handriðs. Handrið á bílageymsluhúsi og á þaksvölum er steinsteypt.
Gluggar, svalahurðir og opnanleg fög eru málaðir trégluggar að innan með álfölsum að utan og þreföldu gleri.
Aðalhurð er rafdrifin álhurð með skynjurum.
Bílastæði malbikuð. Hellulagðar stéttar eru fyrir framan húsið og að anddyrum. Hitalögn er undir þeim. Rampur að bílageymslu er upphitaður
Bílageymsluhús
Bílageymsla einangruð að utan með hita í gólfi. Vélræn loftræsting, þar er tækjaklefi, sorpgeymsla og tveir bílskúrar. Frá bílageymslu er innangengt að lyftu og stigahúsi.
Veggir og loft eru málaðuð. Gólf er vélslípað með niðurfallsrennu fyrir miðju. Hurð á bílgeymslu er úr einöngruðum samlokueiningum með sjálfvirkum opnara. Ein fjarstýring fylgir hverju stæði.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Haraldur Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
S. 661-9391 eða 420-4000
halli@studlaberg.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





















