HÚSASJÁ

Sogavegur 75

01-0206 · 108 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

70 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

2300 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla



206 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

1.071.531 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:

Um er að ræða vel skipulagða og bjarta tveggja herbergja 69.9 fm endaíbúð á annari hæð við í Sogaveg 75, sem að er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.

Rúmgóðar 27.5 fm suður-svalir með íbúð og einnig fylgir með stæði í bílgeymslu.

ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:

Íbúð er 59.4 fm merkt 01-02-06 og geymsla er 10.5 fm merkt 01-00-14, samtals 69.9 fm að stærð.

Stæði í bílgeymslu merkt 01-B03 fylgir með eign.

Nánari upplýsingar um eign:

Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:

Forstofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og stæði í lokaðri bílgeymslu.

Rúmgóðar suður-svalir með íbúð.

Nánari lýsing á eign:

Komið er inn í forstofugang á honum er innbyggður fataskápur.

Stofa/borðstofa og eldhús er opið og bjart rými með gluggum á tvo vegu og er útgengt á 27.5 fm suður-svalir úr stofu.

Eldhús er með snyrtilegri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum, innbyggð uppþvottavél og ísskápur í innréttingu sem að fylgir með í kaupum.

Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskáp.

Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfum og veggjum, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, vegghengt salerni, innrétting er undir vask með hirslum og skápur á vegg, handklæðaofn á vegg og þá er gert ráð fyrir þvottavél á baðherbergi, opnanlegur gluggi á baðherbergi.

Sérgeymsla er í kjallara og bílastæði lokaðri bílgeymslu merkt 01-B03.

Sameiginleg hjóla/vagnageymsla.

Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum íbúðar.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.

-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.

-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.isSkoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Sogavegur 75

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17