HÚSASJÁ

Geirþrúðarhagi 1

01-0306 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

54 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

1888 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



19 dagar á sölu

sell

46.900.000 kr

863.720 kr/m²

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Geirþrúðarhagi 1 - 306

Vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á 3. og efstu hæð í fjölbýlishúsi með lyftu í Hagahverfi. Eignin er samtals 54,3 en þar af er geymsla í sameign 2,3 fm.

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús og stofu í opnu rými, svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.

Forstofa og gangur eru með parketi á gólfi og á gangi er góður fataskápur.

Eldhús og stofa eru í opnu rými með parketi á gólfi og útgengt um rennihurð á rúmgóðar svalir.

Eldhúsinnrétting er með stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél og ágætt skápa og bekkjarpláss.

Svefnherbergi er með parketi á gólfi og góðum fataskáp.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, innréttingu í kringum vask með speglaskáp, stæði fyrir þvottavél, upphengdu salerni og sturtu með vængjahurð.

Annað:

-Laus til afhendingar fljótlega

-Sér inngangur af svalagangi

-Lyfta

-Mynddyrasími

-Hljóðdempandi plötur í lofti utan baðherbergis

-Ljósleiðari

-Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er í sameign á jarðhæð

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

olafur@byggd.is

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

berglind@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955

Kort af Geirþrúðarhagi 1

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð