HÚSASJÁ

Geislaskarð 2

01-0401 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

108 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

8334 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



463 dagar á sölu

sell

78.500.000 kr

726.852 kr/m²

Guðbjörg Helga og Gylfi Jens hjá RE/MAX kynna Geislaskarð 2, 221 Hafnarfirði.

Björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð í þessu nýja vaxandi hverfi, Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði. Íbúðin er á fjórðu hæð og er með skjólgóðum suðursvölum. Húsið er byggt árið 2020 og er á 5 hæðum með 9 íbúðum í húsinu. Íbúðin er 108 m², þar af 5,7 fm geymsla á jarðhæð. Útgefið fasteignamat 2026 skv. HMS verður 77.200.000 kr. Seljendur skoða skipti á stærri eign, hæð eða 4-5 herbergja íbúð í Norðurbænum.

Ekki er fyrirhugað að halda opið hús í bráð. Bókið einkaskoðun hjá

Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali, s. 897 7712 og email: gudbjorg@remax.is

**SÆKTU SÖLUYFIRLIT MEÐ ÞVI AÐ SMELLA HÉR**

Skipulag eignarinnar: Forstofa, hol, eldhús, stofa, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, svalir auk þess fylgir eigninni geymsla.

**SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD OG GANGTU UM HANA Í TÖLVU EÐA SÍMA MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA ÞIG ÁFRAM UM EIGNINA**

Athugaðu að þú getur ýtt á táknin niðri til vinstri og fengið mælistiku og fjarlægt húsgögn með aðstoð gervigreindar AI. Litamunur gæti myndast þar sem áður voru húsgögn er myndað.

Nánari lýsing:

Íbúðin lítur einstaklega vel út, er björt og vel skipulögð með svalir til suðurs. Skipulagið er að baðherbergi er í miðu íbúðar og mynda önnur rými hring kringum það og því er er eldhús og stofa með tvo innganga og þægilega aðkomu úr öðrum rýmum.  Harðparket frá Birgisson ac5, 10 mm þykkt er á íbúðinni og flísar á votrýmum.

Forstofa/Hol: Gott með hvítum fataskáp

Eldhús er vel staðsett með tvo innganga i  enda alrýmis við stofu næst svölum. Falleg innrétting hvít og dökkbrún með svartri borðblötu með marmaraáferð. Bökunarofn undir eyju, helluborð, eyjuháfur, innbyggð uppþvottavél.

Stofa: Opin við eldhús með tvo innganga. Rúmgóð og björt með gluggum til suðurs og vesturs. Björt stofa og þaðan er útgengt út á góðar suðursvalir.

Herbergi 1: Bjart og rúmgott með gluggum til norðurs og austurs. Fataskápar eftir einum vegg. Þess má geta að breidd rúmsins er yfir 2 metrar XXL að stærð semsagt.

Herbergi 2: Rúmgott og bjart. Hvítur fataskápur, gluggi í austur

Herbergi 3: Ágætlega rúmgott og bjart. Hvítur fataskápur, gluggi til norðurs

Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með handlaug í góðri skúffuinnréttingu og speglaskáp á vegg, Walk in sturtu með stóru gleri. Upphengt salerni. Hvítur handklæðaofn. Tveir veggir flísalagðir og tveir lakkaðir. Flísar á gólfi.

Þvottaherbergi: Er innan íbúðar með borðplötu og hillum. Snúra í lofti. Flísar á gólfi.

Sérgeymsla: Er staðsett á jarðhæð á geymslugangi i sameign.

Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Á lóð eru komnar rafhleðslustöðvar fyrir bíla. Sameiginleg stæði á lóð.

Þetta er einstaklega falleg og kósý íbúð sem nýtist sérlega vel með gott aðgengi. Lyfta er i þessu 5 hæða húsi. Góð fjárfesting þar sem verið er að byggja og stækka hverfið.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar er hjá:

Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali, s. 897 7712 og email: gudbjorg@remax.is

Gylfi Jens, löggiltur fasteignasali, s. 822 5124 og email: gylfi@remax.is

Kort af Geislaskarð 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30