HÚSASJÁ

Urriðalækur 20

02-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

115 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

672 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



54 dagar á sölu

sell

77.500.000 kr

670.996 kr/m²

Nýtt á skrá! Urriðalækur 20 Selfossi - Fallegt parhús á einni hæð með stórri verönd og heitum potti.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt, vel skipulagt 115,5 fermetra parhús á einni hæð með tveimur svefnherbergjum á fjölskylduvænum og rólegum stað í lokuðum botnlanga við Urriðalæk á Selfossi. Eignin er samtals 115,5 fermetrar að stærð og skiptist í 90,5 fermetra íbúðarrými og 25,0 fermetra innbyggðan bílskúr með geymslulofti að hluta. Húsið er nýlegt (byggt árið 2020) og virkilega fallegt að utan sem innan. Aukin lofthæð er í húsinu, gólfhiti og innfelld lýsing í loftum með dimmerum.

Virkilega sjarmerandi og skjólgóð afgirt verönd í bakgarði með heitum potti (hitaveitu) og útiskýli/grillskýli. Hellulögð stétt framan hús.

Uppsetning rýma: Forstofa, gangur, rúmgott alrými sem skiptist í stofu, borðstofu og eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi. Snyrtilegur bílskúr með geymslulofti.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi, aukinni lofthæð og innfelldri lýsingu í loftum.

Gangur: Með flísum á gólfi, skápum, aukinni lofthæð og innfelldri lýsingu í loftum.

Alrými: Skiptist í eldhús með eyju og rúmgóða stofu.

Eldhús: Er opið við stofu og borðstofu. Flísar á gólfi og gólfhiti. Falleg nýleg eldhúsinnrétting með eldhúseyju. Borðplötur frá Fantófell. Spansuðu helluborð, stál eyjuháfur, bakaraofn, uppþvottavél og stál kæliskápur með frysti. Gluggar til norðvesturs.

Stofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og aukinni lofthæð. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til norðvesturs og norðausturs. Útgengi á stóra verönd.

Verönd: Er afgirt, skjólgóð og með heitum potti. Grillskýli er staðsett á verönd og lítil útigeymsla norðvestan megin á lóð.

Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir. Stór flísalögð sturta með glerþili, falleg innrétting við vask og upphengt salerni. Aukin lofthæð og innfelld lýsing. Inngengt í þvottaherbergi frá baðherbergi.

Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og góðri innréttingu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð og þvottasnúrur. Aukin lofthæð og útloftun.

Hjónaherbergi: Er rúmgott, með flísum á gólfi og góðum skápum. Aukin lofthæð og gluggar til norðausturs.

Svefnherbergi II: Er rúmgott, með flísum á gólfi og skápum. Aukin lofthæð og gluggar til suðvesturs og norðvesturs.

Bílskúr: Er 25,0 fermetrar að stærð og mjög snyrtilegur. Flísar á gólfi og bílskúrshurð með rafmagnshurðaopnara. Lítið milliloft í enda bílskúrs. Góð innrétting, vinnuborð og vaskur. Stýring fyrir heitan pott í garði og rafhleðslustöð. Inngangshurð.

Um er að ræða virkilega fallegt og vandað parhús í þessu vinsæla hverfi í Lækjunum á Selfossi. Stutt er í alla verslun og þjónustu, leikskóla og frábærar göngu- og hjólaleiðir.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.

Kort af Urriðalækur 20

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36