HÚSASJÁ

Hvassaland 5

01-0101 · 601 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

109 m²

Stærð

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2020

Byggingarár

1278 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Geymsla

Þvottahús



102 dagar á sölu

sell

90.000.000 kr

827.967 kr/m²

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Hvassaland 5

Glæsilegt 108,6 fm, fjögurra herbergja heilsárshús rétt ofan Akureyrar í Hálandarhverfi í nálægð við skíðasvæði í Hlíðarfjalli og önnur útivistar og tómstundarsvæði Akureyrar. Landið liggur norðan Hlíðarfjallsvegar

Við húsið er upphituð geymsla, kjörin fyrir skíði eða annan viðlegubúnað.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu/þvottarými, geymslu og pottrými.

Forstofa er með flísum á gólfi.

Snyrting/þvottarými er inn af forstofu með flísum á gólfi, upphengt salerni, innréttingu í kringum vask með stæði fyrir þvottavél og þurrkara.

Eldhús og stofa eru í opnu rými með flísum á gólfi, glæsilegt útsýni úr eldhúsi og stofurými til austurs og norðurs. Innbyggð uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð í eldhúsi. Stofa og eldhús er mjög bjart rými með stórum gluggum og útgengt er úr stofu út á steypta verönd til austurs og einnig útgengi út til norðurs úr stofu og einnig er hægt að ganga beint inn í pottarýmið úr alrýminu.

Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með flísum á gólfum og fataskápum.

Baðherbergi með flísum á gólfi, á veggjum eru vatnsheldar plötur, sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og ágæt innrétting í kringum vask.

Pottarými með flísum á gólfi, rennihurð út á steypta verönd einnig er innangengt í pottarýmið af baðherbergi.

Geymsla er við hlið inngangs. Hún er með flísum á gólfi, upphituð og rúmgóð. Inntaksrými fyrir hús er í geymslu auk loftskiptibúnaðar.

Annað:

- Bílastæði við húsið er malbikað,  auk þess er malbikað heim að steyptri verönd fyrir utan hús.

- Gólfhiti í öllum rýmum

- Sólpallar og stéttar og skjólveggir eru úr forsteyptum einingum. Stétt er steypt. Snjóbræðslulagnir eru í pöllum og stéttum. Snjóbræðslu er stýrt í gegnum lokað kerfi í inntaksrými.

- Loftræstisamstæða með varmaendurvinnslu er í húsinu og er hún  staðsett í útigeymslu. Útsog er tekið á fimm stöðum; á  snyrtingu,  geymslu, þvottahúsi, eldhúsi og pottarými. Innloftsstútar eru í alrými og svefnherbergjum.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955

Kort af Hvassaland 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu