Ásbraut 1A
02-0201 · 200 Kópavogi



457 dagar á sölu
133.900.000 kr
910.884 kr/m²
Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega 3ja herbergja þakíbúð með sérinngangi við Ásbraut í Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu, alrými/stofu/eldhús, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Íbúðin er björt með gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni, tvennum svölum og aukinni lofthæð. Verslun og þjónusta í göngufæri ásamt fallegum gönguleiðum.
Nánari lýsing: Komið er inn á flísalagða forstofu með fataskápum. Inn af forstofu er komið inn á alrými/stofu með parketi og aukinni lofthæð. Eldhús er parketlagt með fallegri sérsmíðar innréttingu frá HTH/Ormsson og eyju, vönduð eldhústæki frá AEG, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Fallegt útsýni er af hæðinni til vesturs og norðurs. Úr alrými er gengið út á stórar 53 fm,hellulagðar svalir með glerhandriði. Hjónaherbergi er rúmgott með parketi og fataskápum. Útgengi er úr hjónaherbergi út á svalir. Svefnherbergi er parketlagt með fataskápum. Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir, rúmgott með innréttingu, sturtuklefa og baðkari. Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi og innréttingu. Sérgeymsla er í sameign og sameiginleg hjólageymsla. Falleg efri-hæð í 3ja íbúða húsi við botnlangagötu í grónu hverfi.
Nánari upplýsingar veitir: Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




































