HÚSASJÁ

Haukahlíð 3

04-0404 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

65 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2021

Byggingarár

6904 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr



17 dagar á sölu

sell

63.900.000 kr

983.077 kr/m²

Fasteignasalan Garður

Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð á 4. hæð á hinu eftirsótt Hlíðarendasvæði. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi.  Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 65,0 fermetrar, þar af er íbúðarrými og sérgeymsla í sameign. Byggingarár 2021.

Um er að ræða snyrtilega íbúð í nýlegu lyftuhúsi þar sem allt er í göngufæri – miðbær, háskólar, Landspítali, útivistarsvæði í Öskjuhlíð og Nauthólsvík, öll helsta þjónusta ofl.

Nánari lýsing:

Anddyri / forstofa: Parket á gólfi og fataskápur.

Eldhús / alrými: Eldhús og stofa eru í opnu og björtu rými með parketi á gólfi. Vönduð matt-svört eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi, helluborði, ofn og innfelldum ísskáp. Gott pláss er fyrir borðstofuborð.

Stofa: Björt stofa með útgengi á svalir.

Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með stórum fataskáp og parketi á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir að hluta. Upphengt salerni, innrétting með efri skáp við vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Annað:

- Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu

- Sérgeymsla í kjallara

- Lyftuhús

- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla

Í göngufæri er m.a.: Miðbær Reykjavíkur, Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík, Landspítali, Öskjuhlíð og Nauthólsvík, Íþróttasvæði Vals ofl.

Nánari upplýsingar veitir:

Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali

baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli  -  Verðmat fasteigna  -  Lúxus fasteignir  -  Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Kort af Haukahlíð 3

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð