HÚSASJÁ

Fálkahlíð 4

06-0505 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
46 myndir

144 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Baðherbergi

2019

Byggingarár

6904 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



289 dagar á sölu

sell

132.900.000 kr

924.843 kr/m²

Betri Stofan fasteignasala kynnir til sölu: Stórglæsilega 143,7 fm íbúð (að meðtöldum bílskúr) á 5.hæð (efstu) við Fálkahlíð 4 í Reykjavík. Aukin lofthæð. Mikið útsýni er úr íbúðinni, gluggar á þrjá vegu og tvennar svalir. Eigninni fylgir 24,3 fm bílskúr  og sérmerkt stæði í bílageymslu. Möguleiki er að selja bílskúrinn frá eigninni ef áhugi er. Fálkahlíðin er steinsnar frá Öskjuhlíð og stutt er í alla þjónustu.

Nánari lýsing eignar:

Anddyrið er flísalagt með góðum skápum.

Alrými - stofa/borðstofa er parketlaögð og er útgengt út á svalir úr stofunni.

Eldhúsið er með fallegri ljósgrárri innréttingu og innbyggðum tækjum sem fylgja íbúðinni (uppþvottavél og ísskápur). Flísar á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og hluta veggja, snyrtileg innrétting, handklæðaofn og rúmgóð sturta.

Þvottahús/geymsla er innan íbúðar með flísum á gólfi.

Barnaherbergið er rúmgott og er parketlagt með góðum skápum

Hjónaherbergið er parketlagt með stórum skápum. Sér baðherbergi er innaf hjónaherberginu, flísalagt í gólf og hluta veggja, sturta, snyrtilegri innrétting og  handklæðaofn. Svalir eru út af hjónaherberginu með miklu útsýni.

Geymsla er í kjallara en hún er með aukinni lofthæð og góðum hillum sem fylgja. Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Bílskúr er 24,3 fm.

Stæði í lokuðum bílakjallara.

Hverfið er snyrtilegt og vel skipulagt og stutt er í útivistarsvæði við Öskjuhlíð, hjólaleiðir eru um allt og Borgarlínan verður í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar veita Jason Kristinn Ólafsson í síma 7751515 jason@betristofan.is og Páll Þórólfsson löggiltur fasteignasali í síma 893-9929 eða pall@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Fálkahlíð 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu