HÚSASJÁ

Drómundarvogur 6

01-0214 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

88 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2021

Byggingarár

2914 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



144 dagar á sölu

sell

76.900.000 kr

870.895 kr/m²

"Mjög gott verð - Bókið einkaskoðun"

Valhöll kynnir vel skipulagða og vandaða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með yfirbyggðum svölum og bílastæði í bílakjallara við Drómundarvog 6 í Reykjavík.

Um er að ræða íbúð sem skráð er 88,3 m2 að stærð skv. fasteignaskrá HMS og þar af er 6,7 m2 geymsla innaf sameign. Húsið er byggt árið 2021.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottahúsi inn af, geymslu í kjallara auk sérmerkts bílastæðis í bílakjallara.

Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi, sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar og fjölbreytt verslun og þjónusta á Skeifusvæðinu.

Fasteignamat ársins 2026 verður 75.800.000 kr.

Nánari upplýsingar veitir:

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfanginu snorribs@valholl.is

Nánari lýsing:

Forstofa: með fataskáp og harðparketi á gólfi.

Eldhús: í alrými með fallegri innréttingu, eyju með helluborði, ofni í vinnuhæð, aðstöðu fyrir uppþvottarvél og harðparketi á gólfi.

Stofa / borðstofa: í alrými með eldhúsi með harðparketi á gólfi og útgengi á svalir með glerlokun og timburfjölum á gólfi.

Svefnherbergi I: rúmgott með fataskápum og harðparketi á gólfi.

Svefnherbergi II: með fataskáp og harðparketi á gólfi.

Baðherbergi: með innréttingu undir vaski og speglaskáp fyrir ofan vask, "walk in" sturtu, upphengdu salerni og flísum á gólfi og veggjum.

Þvottaaðsaða: inn á baðherbergi með góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvask, skápum, opnanlegum glugga og flísum á gólfi.

Svalir: notalegar yfirbyggðar svalir með timburfjölum á gólfi.

Bílastæði: bílastæði í bílakjallara. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu og stigahús.

Geymsla: 6,7 m2 sérgeymsla í kjallara.

Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg hjóla í kjallara.

Húsfélagsgjöld eru 26.198 kr. á mánuði.

Eignarhlutur íbúðar í húsinu er 1,49%.

Nánari upplýsingar veitir:

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfanginu snorribs@valholl.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Drómundarvogur 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu