HÚSASJÁ

Dugguvogur 8

04-0401 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

138 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

3665 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Þvottahús



418 dagar á sölu

sell

97.900.000 kr

709.420 kr/m²

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ YFIRBYGGÐUM SVÖLUM OG STÆÐI Í LOKAÐRI BÍLAGEYMSLU Í NÝLEGU LYFTUHÚSI VIÐ DUGGUVOG 8 Í REYKJAVÍK.

Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 4. hæð, merkt 401 með yfirbyggðum svölum og stæði í lokaðri bílageymslu.

Íbúðin er skráð 138 fm., þar af er 16,5 fm. sérgeymsla í kjallara.

Þrjú góð svefnherbergi í íbúðinni.

Innréttingar í eldhúsi og á baðherbergi eru frá Nobilia.

Klætt hús að utan sem tryggir lágmarksviðhald.

Góð staðsetning miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu þar sem stutt er í matvöruverslanir, líkamsræktarstöðvar og göngu- og hjólastíga. Verið er að vinna að byggingu göngu- og hjólabrúar yfir Sæbraut sem kemur til með að tryggja gönguleið skólabarna í Vogaskóla. Stigahús og lyftustokkar verða við báða enda brúarinnar, sem verður yfirbyggð.

Bókið skoðun hjá Hildi í síma 661-0804 eða á hildur@fjarfesting.is.

Nánari lýsing:

Anddyri með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.

Eldhús, opið inn í stofu/borðstofu með parketi á gólfi, hvítri innréttingu, tækjum frá Electrolux, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél.

Stofa/borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á yfirbyggðar svalir.

Sjónvarpshol með parketi á gólfi.

Hjónaherbergi með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskápum.

Barnaherbergi eru tvö með parketi á gólfum og fataskápum.

Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg inn í sturtu, hvítri innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni.

Þvottahús með flísum á gólfi.

Stæði í lokaðri bílageymslu, sérgeymsla (16,5 fm.), og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Leiktæki fyrir börn á lóð inn í garði.

Kostnaður kaupanda:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.

2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.

3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.

4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.

Kort af Dugguvogur 8

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Dugguvogur 8, 04-0401 | Húsasjá