Dalsbraut 22
01-0206 · 260 Reykjanesbæ



24 dagar á sölu
69.900.000 kr
646.026 kr/m²
Nýtt á skrá! Dalsbraut 22 í Njarðvík - Glæsileg 4ra herb. íbúð með stórum 18,7 fermetra svölum með svalalokun.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir til sölu glæsilega, bjarta og nýlega 108,2 fermetra 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð, þar af 5,8 fermetra geymslu á jarðhæð á eftirsóttum stað við Dalsbraut í Reykjanesbæ. Gluggar íbúðar snúa til vesturs, norðurs og austurs. Stórar 18,7 fermetra svalir með svalalokun til vesturs með fallegu útsýni yfir Reykjanesbæ og út á sundin. Sérmerkt bílastæði á lóð.
Stór stofa sem nýtist sem borðstofa og stofa. Stofur eru opnar við eldhús. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft, kvartz steinn á borðum og vönduð tæki frá Siemens. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara innan íbúðar.
Stapaskóli, einn glæsilegasti leik- og grunnskóli landsins hefur tekið til starfa í þessu blómlega hverfi, steinsnar frá íbúðunum. Stapaskóli er heildstæður skóli, leikskóli grunnskóli og tónlistarskóli, frístundarskóli og félagsmiðstöð og mun fullbyggður skólinn rúma ríflega 600 nemendur. Íþróttahús (Ice Mar höllin) og sundlaug er byggt við skólann og hefur verið tekið í notkun. Um er að ræða skóla fyrir 2 ára og upp úr. Bókasafnið, matsalur, félagsaðstaða og sundlaug nýtast sem menningarmiðstöð fyrir hverfið eftir lokun skólans.
Nánari lýsing:
Forstofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og skápum.
Aðalrými skiptist í stofu og eldhús.
Stofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi, gluggum til vesturs og norðurs og útgengi á stórar svalir. Stofa er opin við eldhús.
Svalir: Eru stórar, eða 18,7 fermetrar að stærð, með svalalokun og fallegu útsýni út á sundin og yfir Reykjanesbæ.
Eldhús: Er afar vandað með sérsmíðuðum innréttingum, Kvartz stein á borðun og vönduðum eldhústækjum frá Siemens. Innbyggður kæliskápur og gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél. Gluggi til norðurs.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til norðurs/austurs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi, góðum skápum og glugga til vesturs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta með gleriþili. Falleg innrétting við vask með kvartz steini á borði og speglaskáp fyrir ofan. Upphengt salerni, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð hússins.
Sérgeymsla er staðsett á jarðhæð hússins.
Nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson löggiltur fasteignasali í síma 849-0672, tölvupóstur heimir@fastlind.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir










































