HÚSASJÁ

Mosagata 11

01-0201 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

118 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

6117 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



26 dagar á sölu

sell

104.900.000 kr

882.997 kr/m²

RE/MAX, Garðar Hólm lgf. og Guðlaug Jóna lgf. kynna: fallega og bjarta 4ra herbergja, 118,8 fm endaíbúð með sérinngangi í lyftuhúsi í Urriðaholtinu í Garðabæ.  Frábært útsýni og stæði í bílageymslu.

Nánari lýsing:

Forstofa, flísalögð með tvöföldum fataskáp.

Eldhús með innréttingu frá HTH, spónlögð ljós og hvít sprautulökkuð, plastlögð borðplata, vönduð tæki frá AEG og tengi fyrir uppþvottavél.

Stofa / borðstofa, björt og rúmgóð með stórum gluggum og miklu útsýni. Útgengt á 12,8 ferm svalir.

Hjónaherbergi með fataskáp.

Barnaherbergi I með fataskáp.

Barnaherbergi II með fastaskáp.

Baðherbergi, flísalagt, hvít innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu aðstöðu.

Þvottahús, flísalagt með skolvask.

Geymsla 11,3 fm og stæði í bílageymslu.

Urriðaholt er nýtt hverfi í Garðabæ með einstakt útsýni til allra átta. Urriðaholt byggir á hugsjón um að íbúabyggð eigi að hámarka lífsgæði fólksins sem þar býr í sátt við náttúruna í kring og umhverfið allt. Urriðaholt er þéttbýli í náinni tengingu við nokkur helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortna náttúru og góðar samgönguæðar sem stytta leiðir í allar áttir.

Allar nánri upplýsingar veita:

Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 eða gardar@remax.is

Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is

Kort af Mosagata 11

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu