Stillholt 21
03-1001 · 300 Akranesi



30 dagar á sölu
116.000.000 kr
679.953 kr/m²
Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Sérlega glæsileg 170,6 fm þakíbúð á 10. hæð með sérstaklega fallegu útsýni af tvennum svölum, 23 fm austursvölum og rúmum 24 fm suðursvölum.
Íbúðin er á 10. hæð í lyftuhúsnæði, íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara. Íbúðin er í alla staði hin glæsilegasta með lofthæð sem er tæpir 3 metrar.
Innan íbúðar eru tvö svefnherbergi ( möguleiki á því þriðja ) Hjónaherberginu fylgir sérbaðherbergi með sturtu og opnu fataherbergi.
Aðalbaðherbergi einnig með sturtu, inn af aðalbaðherbergi er þvottahús.
Alrými samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu sem er um 70 fm. Suðursvalir úr stofu og austursvalir úr hjónaherbergi með heitum potti.
Íbúðinni fylgir uppþvottavél og ísskápur.
Hjóla og vagnageymsla á 1. hæð. Stillholt 21 er staðsett miðsvæðis á Akranesi, við verslunarkjarnann Dalbraut 1. Akranesi. Þar er að finna verslun og þjónustu eins og Krónan matvöruverslun, Íslandsbanki, og bókasafn m.a.
Sérgeymsla í kjallara 12,6 fm.
Boðið er upp á einkaskoðun eftir samkomulagi, allar nánari uppl. veitir Hákon í síma 898-9396 eða á netfanginu hakon@valfell.isAllar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


























