HÚSASJÁ

Aldinmörk 8

01-0302 · 810 Hveragerði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

80 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

654 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Lyfta

Geymsla



38 dagar á sölu

sell

59.900.000 kr

749.687 kr/m²

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu fallega íbúð við Aldinmörk 8, 810 Hveragerði.

Eignin er samtals 79,9 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Eignin skiptist í íbúð, 73,9m2, og geymslu, 6m2

Íbúðin er nýleg, þriggja herbergja á þriðju hæð, með sérinngangi í lyftuhúsi.

Eignin telur forstofu, alrými með eldhús og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Eignin er staðsett í hjarta Hveragerðis.

Áætlað fasteignamat 2026 er kr. 56.850.000,-

Nánari upplýsingar veita:

Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.

Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.

Nánari lýsing:

Gengið er upp útitröppur um sérinngang af svölum en einnig er lyfta í húsinu í utanáliggjandi byggingu sem tengist svalagangi.

Forstofan er opin og björt með flísum á gólfi og leiðir þig inní aðalrými íbúðarinnar.

Í opnu rými er stofa, borðstofa og eldhús með útgengi á austursvalir með glæsilegu útsýni.

Eldhúsið er sérsmíðað með vönduðum heimilistækjum af AEG gerð frá Ormsson, fjölvirkur sjálfhreinsandi blástursofn með rafeindaklukku og hraðhitakerfi. 60 cm keramik helluborð með fjórum spansuðuhellum og innbyggðri uppþvottarvél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.

Tvö góð svefnherbergi eru í íbúðinni, hjónaherbergi sem er bjart og rúmgott með góðum skápum ásamt barnaherbergi með skápi. Möguleiki er að bæta við þriðja svefnherberginu til vinstri við forstofu en dæmi eru um að slíkt hafi verið gert í sambærilegum íbúðum.

Baðherbergið er með flísum á gólfi og nettri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og stórri og góðri "walk in" sturtu. Vélrænt útsog. Vegghengt salerni, handlaug með einnar handar GROHE blöndunartæki. Gólfhiti er á baðherbergi.

Húsið er byggt árið 2019 og er aðalverktaki Já verk. Aldinmörk 8 er þriggja hæða fjölbýli ásamt geymslum og hjóla/vagnageymslu í kjallara. Við húsið er utanáliggjandi lyfta sem tengist svalagangi sem er við húsið frá kjallara og uppúr.

Íbúðinni fylgir 6m² geymsla í kjallara sem er inní fermetratölu eignar.

Gólfefni íbúðar eru harðparket og flísar.

Eignin er á svokölluðum Edenreit, miðsvæðis í Hveragerði.

Lóð og bílstæði frágengin og snyrtileg.

Stutt í skóla, verslun og almenna þjónustu.

Miðsvæðis er leiksvæði og sælureitur með litlum gróðurhúsum sem íbúar geta fengið að njóta góðs af.

Nánari upplýsingar veita:

Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.

Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Aldinmörk 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23