HÚSASJÁ

Hallgerðargata 3

01-0304 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

91 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

4023 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Hjólastólaaðgengi



186 dagar á sölu

sell

89.900.000 kr

992.274 kr/m²

Fasteignamarkaðurinn ehf: s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega og vandaða 3ja herbergja 90,6 fermetra íbúð á 3. hæð með yfirbyggðum suðvestursvölum í mjög nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi við Hallgerðargötu í Reykjavík. Aðgangur að bílastæði í bílakjallara fyrir 8.000 krónur á mánuði.

Eignin er, sem fyrr segir, mjög vönduð:

- Aukin lofthæð er í íbúðinni og gólfsíðir gluggar

- Vönduð loftræsting er í öllum rýmum

- Kvartsteinn er á borðum innréttinga

- Gólfhitalagnir í öllum rýmum

- Yfirbyggðar og opnanlegar vestursvalir með frábæru útsýni út á sjóinn, að Hörpu og miðborginni

- Vandaðar innréttingar úr hnotu

- Innfelld lýsing í loftum

Lýsing eignar:

Forstofa / hol, parketlagt og með innbyggðum fataskápum í vegg.

Hjónaherbergi, stórt, parketlagt með gólfsíðum gluggum og miklum innbyggðum fataskápum í vegg.

Barnaherbergi, stórt, parketlagt og með innbyggðum fataskápum í vegg.

Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting með kvartsteini á borði, veggskápar, handklæðaofn, vegghengt wc og flísalögð sturta með unidrain niðurfalli.

Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með fallegri innréttingu úr hnotu með kvartsteini á borði, gleri á milli skápa, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp með frysti.

Stofa, parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum og útgengi á yfirbyggðar opnanlegar svalir til vesturs með viðarklæddu gólfi og frábæru útsýni út á sjóinn, að Hörpu og miðborginni.

Í kjallara hússins eru:

Sérgeymsla, 9,2 fermetrar að stærð.

Aðgengi að bílastæði í bílakjallara fyrir kr. 8.000 á mánuði.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Húsið að utan er klætt með áli og gluggar eru úr ál/tré þannig að húsið er viðhaldslétt, auk þess að vera nýlegt og líta vel út.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, miðsvæðis, þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir, þjónustu og út á aðalbraut.

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.

Kort af Hallgerðargata 3

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð