HÚSASJÁ

Hallgerðargata 3

01-0203 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

60 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

4023 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla



12 dagar á sölu

sell

65.800.000 kr

1.102.178 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Smekkleg og björt tveggja herbergja íbúð á 2. hæð á frábærum stað við Hallgerðargötu í Reykjavík. Íbúðin státar af vönduðum innréttingum sem frágengnar eru upp í loft, kvartssteini á borðum í eldhúsi og á baðherbergi, gólfsíðum gluggum, gólfhita og loftskiptikerfi sem tryggir betri loftgæði. Aðgengi er að bílageymslu gegn hóflegu mánaðargjaldi. Frábær staðsetning í göngufæri við Laugardalinn og stutt í miðbæ Reykjavíkur.

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:

Forstofa: Mjög rúmgóð með góðum fataskáp. Harðparket á gólfi.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, kvartssteini á borði, upphengdu salerni, walk-in sturtu og handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.

Eldhús: Falleg innrétting sem frágengin er upp í loft. Kvartssteinn á borði. Innbyggður ísskápur og rými fyrir uppþvottavél. Eldhús er í opnu alrými við stofu.

Stofa: Björt með gólfsíðum gluggum og harðparketi á gólfi. Útgengi á rúmgóðar suðvestur svalir. Heimilt er að setja upp svalalokun fyrir þá sem það kjósa.

Svefnherbergi: Mjög rúmgott og bjart. Gólfsíðir gluggar og góður fataskápur. Harðparket á gólfi.

Geymsla: Góð 6,8 fm geymsla fylgir íbúð í kjallara. Hátt er til lofts.

Bílageymsla: Stór bílageymsla er undir reitnum. Aðgengi er að bílageymslu gegn hóflegu mánaðargjaldi (um 9.000 kr.). Gott aðgengi er að hleðslustöðvum í bílageymslu.

Nánari upplýsingar veitir:

Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Hallgerðargata 3

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð