HÚSASJÁ

Smyrilshlíð 10

02-0410 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

115 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

7596 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



187 dagar á sölu

sell

107.900.000 kr

939.077 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir:

Gullfalleg 114,9fm fjögurra herbergja enda íbúð á 4 hæð í nýlegu lyftu fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað. *Aukin lofthæð* *Stæði í bílageymslu með rafhleðslustöð* Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og stæði. Frábær staðsetning við rætur Öskjuhlíðar, nálægt miðpunkti miðbæjarins. Stutt er í alla helstu þjónustu, frábærar gönguleiðir, íþróttir, samgöngur, iðandi mannlíf, skóla og stóra vinnustaði. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

NÁNARI LÝSING :

Komið er inn í forstofu með skápum, parket á gólfi. Gangur með parketi á gólfi. Rúmgott og bjart alrými með aukinni lofthæð, glæsilegt eldhús með eyju, tengi fyrir uppþvottavél, opin við borðstofu, parket á gólfi. Útgengt út á suð/austur svalir. Stofa með stórum gluggum parket á gólfi. Stórt hjónaherbergi með skápum, parket á gólfi. Tvö góð herbergi með skápum, parket á gólfi. Baðherbergi með "walk in" sturtu með hertu gleri, innrétting við vask, handklæðaofn, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. Gott þvottahús með vaski og vinnuborði, flísar á gólfi. Í kjallara er sér 5,2fm geymsla. Sér merkt bílastæði í bílakjallara með rafhleðslustöð.

Húsið er einangrað að utan og klætt með álklæðeiningu.

Lóð: Inngangur og aðkeyrsla í bílageymslu eru upphituð með snjóbræðslulögnum. Sameiginlegur garður: Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu. Bekkir og leiksvæði með leiktækjum. Vagna og hjólageymsla er í sameign hússins

Sameign: Lyfta fyrir allar hæðir og niður í bílageymslu. Gluggar eru álklæddir trégluggar með tvöföldu einangrunargleri (K-gleri). Útihurðir, ásamt innri hurðum í anddyri eru með rafrænum opnunarbúnaði. Á gólfum stigahúsa og í sameign, að undanskildum anddyrum, sorpi hjól og vagnageymslum, geymslugöngum og brunastúkum inn í bílageymslu er teppi, en flísar á anddyri. Útveggir eru ýmist múrhúðaðir að innan eða sandspatlaðir og innveggir eru ýmist hlaðnir og múrhúðaðir eða léttir gipsveggir.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Kort af Smyrilshlíð 10

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð