HÚSASJÁ

Smyrilshlíð 2

01-0402 · 102 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

91 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

7596 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



647 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

882.873 kr/m²

RE/MAX og Guðrún Þórhalla löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu; Glæsilega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð í nýlegu lyftuhúsi við Smyrilshlíð 2, Reykjavík. Samkv. þjóðskrá er íbúðin skráð 90,9 fm og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og samliggjandi eldhúsi, borðstofu og stofu. Sér geymsla fylgir eigninni ásamt sameiginlegu hjóla- og vagnarými. Eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.

Falleg og snyrtileg lóð með leiktækjum. Góð staðsetning í nálægð við hverfisbúð, leik- og grunnskóla, Háskólann í Reykjavík/Háskóla Íslands. Einnig er miðbærinn í göngufæri.

Hér er um að ræða skemmtilega eign á góðun stað í nálægð við ýmsa þjónsutu sem og göngu- og hjólaleiðir og miðbæ Reykjavíkur.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignsali í síma 820-0490, gudrun@remax.is

Nánarí lýsing:

Inngangur inn í sameign er bæði að framan og einnig úr garðinum. Gengið er inn í íbúð frá svölum, eignin er endaíbúð á svalagangi sem snýr út í garð.

Forstofa er rúmgóð með fataskáp og parket á gólfi.

Baðherbergi, með góðri flísalagðri sturtu og fallegri innréttingu. Aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.

Eldhús er í alrými með stofu og borðstofu. Falleg innrétting og góð tæki auk þess er eldhúseyja með helluborði og háfi yfir. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með.

Borðstofa og stofa eru í rúmgóðu rými með björtum glugga í vestur og er þar gengið út á svalir.

Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum og er það stærra sérlega rúmgott.

Sérstæði fylgir þessari íbúð í lokaðri bílageymslu í kjallara.

Í sameign í kjallara er sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Húsið er viðhaldslítið, það er klætt með álklæðningu að mestu leiti. Virkilega snyrtilega og vel um gengin sameign.

Gólfefni eru: flísar í baðherbergi. Í öðrum rýmum er harðparket.

Hér er um að ræða skemmtilega eign á góðun stað í nálægð við ýmsa þjónsutu sem og göngu- og hjólaleiðir og miðbæ Reykjavíkur.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignsali í síma 820-0490, gudrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Smyrilshlíð 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð