Bjarkardalur 6B
01-0201 · 260 Reykjanesbæ



166 dagar á sölu
83.900.000 kr
643.899 kr/m²
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega eign að Bjarkardal 6b, birt stærð er 130,3fm. Íbúðin er einstaklega vönduð og vel skipulögð með aukinni lofthæð og sérinngangi í fjórbýlishúsi. Íbúðin er 105,9fm og bílskúr 24,4fm.
Helstu kostir:
Lúxus innréttingar: Þýskar innréttingar frá Nobila, innbyggður ísskápur með frysti ásamt uppþvottavél. Falleg lýsing er frá Lumex.
Tvö baðherbergi: Bæði eru með gólfhita og hágæða hreinlætistækjum.
Stórar svalir: 40fm svalir.
Bílskúr snyrtilegur með hurðaropnara.
Vönduð gólfefni: Ítalskar flísar á votrýmum og harðparket frá Parka á stofu og svefnherbergjum.
Frábær staðsetning: Íbúðin er aðeins 20 mínútur frá höfuðborgarsvæðinu og steinsnar frá Stapaskóla.
Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð með rúmgóðum fataskápum. Hægt að ganga inn í eldhús og alrými.
Eldhús: Flísar á gólfi, með sér smíðuðum innréttingum og borðplötu úr Meganite “stein”, dimmanleg lýsing er undir efri skápum. Eldhúsið er með innbyggðum tækjum frá Progress (AEG).
Stofa: Er björt og rúmgóð með harðparketi ásamt útgangi út á svalir.
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi hefur góðan fataskáp, sér baðherbergi ásamt útgangi út á svalir.
Svefnherbergi II: hefur góðan fataskáp og harðparket á gólfi.
Baðherbergin: Eru bæði flísalögð með gólfhita, fallegum innréttingum og steinborðplötu. Annað baðherbergið er inn af hjónaherbergi.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Vönduð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, ásamt skolvask.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Brynjar Guðlaugsson
Lögg. fasteignasali
s. 896-5464 eða 420-4000
brynjar@studlaberg.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





























