Borgarbraut
01-0601 · 310 Borgarnesi



27 dagar á sölu
67.000.000 kr
711.253 kr/m²
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.
Um er að ræða 3ja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri á 6. hæð, merkt 0601, í 7 hæða lyftuhúsi, byggingarár 2018. Íbúðin er 94,2 fm að stærð skv. skráningu FMR. Þar af er sér geymsla í kjallara sem skráð er 10,7 fm. Svalir eru 6.3 fm mót suðri með svalalokun. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara hússins.
Eignin er laus til afhendingar fljótlega eftir kaupsamning.
Nánari lýsing:
Sameign: Flísalagt anddyri, lyfta og teppalagður stigagangur í sameign.
Íbúð: Vinildúkur (parket) er á öllum gólfum utan votrýmis.
Forstofa: Rúmgóðir fataskápar.
Eldhús: Með smekklegri innréttingu og góðum AEG tækjum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með vegghengdu salerni, sturtu og innréttingu.
Stofa: Björt og rúmgóð, gegnt út á suðursvalir með svalalokun. Mikið útsýni
Svefnherbergi: Eru 2, gott skápapláss í hjónaherbergi.
Geymsla: Er í sameign í kjallara, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Bílastæði: Íbúðinni fylgir 1 stæði í upphituðum bílakjallara.
Íbúðin er mjög smekkleg og vel um gengin. Skipt hefur verið um alla glugga í íbúðnni vegna gallamála. Vinildúkur er á öllum gólfum utan votrýmis en nýtt parket fylgir með á alrými og svefnherbergi.
Hér er um mjög vel staðsetta íbúð að ræða, miðsvæðis í Borgarnesi. Örstutt í alla þjónustu og stórkostlegt útsýni um Borgarfjörð.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






















