Eskivellir 11
01-0205 · 221 Hafnarfirði



5 dagar á sölu
68.900.000 kr
817.319 kr/m²
Landmark fasteignamiðlun kynnir:
Einstaklega falleg og vel skipulögð 3ja herbergja 84,3 fm. íbúð á 2. hæð með sérinngangi að svölum. Nýlega búið að endurnýja eldhús með glæsilegri innréttingu og tækjum frá Siemens.
2 rúmgóð svefnherbergi og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inni á baðherbergi. Eignin er byggð 2020. Stórar suðursvalir. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Lyfta í stigahúsi. Búið er að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla á lóð hússins sem allir íbúar geta nýtt sér.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 / th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast.
Nánari lýsing:
Forstofa: Harðparket á gólfi, fataskápur.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð og björt með harðparket á gólfi, útgengt á góðar suðursvalir.
Eldhús: Glæsileg hvítlökkuð innrétting með vöndum tækjum frá Siemens. Mikið skápapláss. Flísar á milliskápa og innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergi: 2 herbergi, bæði rúmgóð með harðparket á gólfi, fataskápur í báðum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Stór sturta aðskil með gleri. Falleg innrétting í kringum handlaug. Góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn.
Geymsla innan íbúðar.
Sameiginleg hjólageymsla og sameign snyrtileg.
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
























