HÚSASJÁ

Álalækur 11

02-0104 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
13 myndir

64 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

3297 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



35 dagar á sölu

sell

46.500.000 kr

727.700 kr/m²

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Álalæk 11 Selfossi. Snyrtileg tveggja herbergja enda íbúð á jarðhæð með sér inngangi.

íbúðin er 63,9 m2 að stærð, þarf af geymsla í sameign 2,4 m2.

** Bókið skoðun hjá Maríu Mjöll í síma 866-3934, sýnum með stuttum fyrirvara**

Skipulag: Forstofa, svefnherbergi, baðherbergi/þvottahús, stofa og eldhús í opnu rými, geymsla í sameign.

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi, svefnherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp. Baðherbergi er rúmgott, flísalögð "walkin" sturta, baðinnrétting með spegli fyrir ofan og handklæðaofn. Inná baðherbergi er einnig þvottahúsinnrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara.

Eldhús og stofa eru í opnu rými, eldhúsinnrétting með skápum ofan og neðan borðplötu, háfur fyrir ofan helluborð. Útgengt er úr stofunni á hellulagða verönd.

Lóðin er þökulögð og bílaplan malbikað.

Nánari upplýsingar veitir: María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8663934 eða maria@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Álalækur 11

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð