Hafnarbraut 15A
01-0309 · 200 Kópavogi



22 dagar á sölu
77.900.000 kr
826.087 kr/m²
Lind fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna virkilega fallega og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á Kársnesinu með bílastæði í kjallara og sérlega skjólgóðum svölum til suð-vesturs með útsýni út á sjó. Hleðslustöð við bílastæði í kjallara. Íbúðin er afar björt og nær í gegnum húsið, fallegar hvítar innréttingar frá HTH og ná skápar upp í loft. Vönduð tæki frá AEG í eldhúsi.
Húsið var byggt árið 2019. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 94,3 m2 þar af er íbúðin 81,4 m2 og geymslan 12,9 m2. Í sameigninni er rúmgóð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Dýrahald er leyft í húsinu.
Nánari lýsing
Forstofan er opin með parketi, innbyggðum fataskápum og dyrasíma með myndavél.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til, innréttingar á tvo vegu , auk þess er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu, rúmgóð walk-in sturta, hiti í gólfi.
Eldhús er opið inn í stofu með fallegri innréttingu, span helluborði, innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ísskáp með frysti, bakarofni og parket á gólfi.
Stofa með parketi, útgengið út á sérlega skjólgóðar svalir til suð-vestur með útsýni til sjávar. Heimild er fyrir uppsetningu svalalokunar.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parketi og fataskápum.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og innbyggðum fataskáp.
Geymsla í sameign
Skjólgóður aflokaður garður með leiktækjum. Húsgjöld eignarinnar eru 25.476 kr á mánuði, innifalið í húsgjöldum er allur almennur rekstur, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, framkvæmdasjóður, húseigandatrygging, þrif sameignar, og þjónusta Eignarumsjónar. Engar fyrirhugaðar framkvæmdir.
Húsið er viðhaldslétt einangrað að utan, álklætt að hluta og gluggar ál-tré. Mikil byggð er nú í uppbyggingu við sjávarsíðuna yst á Kársnesi í Kópavogi. Nálægð við sjávarsíðu og smábátahöfn gerir byggðina að einni eftirsóknarverðustu staðsetningu Kópavogsbæjar. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






























