HÚSASJÁ

Maríugata 10

01-0101 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

194 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2020

Byggingarár

491 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



1 dagar á sölu

sell

199.000.000 kr

1.022.610 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt raðhús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr við Maríugötu 10 á þessum eftirsótta stað í Urriðaholti Garðabæjar þar sem skóli, leikskóli og einn besti golfvöllur landsins, Urriðavöllur er í næsta nágrenni. Um er að ræða eign sem er skráð skv F.M.R. 194,6 fm og þarf af er bílskúr 33,6 fm. Eignin skiptist eftirfarandi: Forstofa, sjónvarpshol, stofa, eldhús, þrjú svefnherbergi og fataherbergi innaf hjónaherbergi, tvö baðherbergi bæði með sturtu, þvottaherbergi með innréttingu og geymsla. Innangengt er í bílskúrinn. Mikil lofthæð, stórir gluggar og gólfhiti. Innrettingar eru frá Brúnás. Gegnheilt parket er á aðlrými, listalaus frágangur. Aðkoman er falleg og stéttar að inngangi og bílastæði fyrir framan bílskúr eru hellulögð með hitaílögnum, frágengnum garði og timburverönd með heitum potti (hitaveitu). Bílastæði framan við bílskúr er með 3fasa hleðslustöð og hitaílögnum, önnur bílastæði á lóð eru hellulögð. Staðsetning er mjög eftirsótt þar sem útivistarsvæðin Heiðmörk, Vífilstaðavatn og Urriðavatn eru í næsta nágrenni.  Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s. verslun, heilsugæslu og íþróttamannvirkjum. Hverfið byggir á hugsjón um að íbúðarbyggð eigi að hámarka lífsgæði fólks sem býr í sátt við náttúruna og umhverfið allt. Hverfið nýtur allra þjónustu sem Garðabær hefur uppá að bjóða. Allar nánari upplýsingar veitir:  Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Nánari lýsing: Forstofa: flísar eru á gólfi og góður fataskápur.

Sjónvarpshol: frá forstofu er komið inná rúmgott sjónvarpshol sem leiðir inní önnur rými eignarinnar.

Stofa: Stofan er björt og falleg með gólfsíðum gluggum, góðri lofthæð, fallegri kamínu frá Funa og útgengt er út í garð. Hljóðdempandi loft er í stofu og eldhúsi.

Eldhús: Í eldhúsinu er falleg innrétting (eik) frá Brúnás og quartz steinn á borðum, niðurfellt keramikhelluborð, tveir ofnar eru í vinnuhæð , uppþvottavél er innbyggð og  tvöfaldur ísskápur frá Simens fylgir með.

Svefnherbergi: herbergin eru þrjú, góðir fataskápar eru í barnaherbergjum og fataherbergi er innaf hjónaherbergi.

Baðherbergi: baðherbergin eru tvö, bæði með sturtu með glerskilrúmi, innréttingum frá Brúnás með quartz stein á borði og flísalögðu gólfi og veggjum að hluta.

Geymsla: innan íbúðar er geymsla.

Bílskúr: innangengt er í bílskúr frá þvottaherbergi. Epoxy er á gólfi og góðar innréttingar.

Niðurlag: Þetta er glæsilegt raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á þessum eftirsótta stað í Urriðaholti Garðabæjar þar sem skóli, leikskóli, golfvöllur og útivistarsvæði eru í göngufæri. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða hafdis@fstorg.is

Kort af Maríugata 10

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð