HÚSASJÁ

Bjarkarholt 29

01-0302 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

72 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2020

Byggingarár

10919 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Þvottahús



10 dagar á sölu

sell

64.900.000 kr

902.643 kr/m²

Landmark fasteignamiðlun kynnir:

Virkilega fallega 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í vönduðu fjölbýli með lyftu, byggt 2020.  Eignin er skráð 71,9 fm. íbúð er 64,7 fm. og sérgeymsla í kjallara 7,2 fm.

Stórt svefnherbergi og baðherbergi með góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.  Falleg eldhús innrétting. Aukin lofthæð og stórar suðaustursvalir með fallegu útsýni.

Sameign er snyrtileg.  Íbúðin er nýmáluð og laus til afhendingar við kaupsamning.

Eignin skiptist í  forstofu, miðrými, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi / þvottahús, sérgeymslu og góðar suðaustursvalir.

Nánari upplýsingar veitir:

Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770-0309 / th@landmark.is

Sveinn Eyland lögg. fast.

Nánari lýsing:

Forstofa:  Fatahengi og skápur.  Harðparket á gólfi.

Stofa:  Rúmgóð og björt með harðparket á gólfi.  Útgengt á góðar suðaustursvalir með fallegu útsýni.

Eldhús:  Falleg innrétting, tengi fyrir uppþvottavél.  Góð aðstaða fyrir borðstofuborð.  Harðparket á gólfi.

Svefnherbergi:  Rúmgott með stórum fataskáp.  Harðparket á gólfi.

Baðherbergi:  Flísar á gólfi og hluta af veggjum.  Walk in sturta flísalögð.  Falleg innrétting í kringum handlaug.  Góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara þar inni.  Upphengt salerni og handklæðaofn.

Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegri hjólageymslu.Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Bjarkarholt 29

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð