HÚSASJÁ

Lyngás 1E

06-0208 · 210 Garðabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
40 myndir

102 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

18168 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla



110 dagar á sölu

sell

81.900.000 kr

802.155 kr/m²

Þrjú svefnherbergi - Stæði í bílageymslu - Sérinngangur af svölum - Gott verð

Valhöll kynnir fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi byggðu árið 2019 í Lyngási 1E í Garðabæ. Stæði í upphitaðri bílageymslu fylgir með. Sérinngangur af svölum. Lyfta er í húsinu sem gengur niður í bílageymslu.

Eignin er skráð 102,1 fm á stærð skiptist í 92,4 fm íbúð og 9,7 fm geymslu.

Þetta er góð eign miðsvæðis í Garðabæ á góðu verði sem vert er að skoða.

Skoða myndband af eigninni.

Nánari lýsing:

Anddyri: með fataskáp og flísum á gólfi.

Eldhús: með hvítri innréttingu, góðu borð- og skápaplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og parketi á gólfi.

Þrjú svefnherbergi: öll með fataskápum og parketi á gólfi.

Baðherbergi: með baðkari með sturtuaðstöðu, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofni, skápum, innréttingu og speglaskáp og flísum á gólfi.

Stofa / borðstofa: samliggjandi í opnu rými með eldhúsi með parketi á gólfi og útgengi á 6,9 fm vestur svalir.

Geymsla: 9,7 fm sérgeymsla í kjallara.

Bílastæði: sérbílastæði í upphituðum bílakjallara.

Hjóla- vagnageymsla: sameiginlega í kjallara.

Nánari upplýsingar veitir:

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða í tölvupósti á netfangið snorribs@valholl.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Lyngás 1E

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð