HÚSASJÁ

Naustavör 9

01-0204 · 200 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

88 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

1564 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



130 dagar á sölu

sell

86.900.000 kr

989.749 kr/m²

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir einstaklega fallega og vandaða 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í vönduðu fjölbýlishúsi við Naustavör í Kópavogi.

Íbúðin skiptist í rúmgott anddyri, stílhreint eldhús með eyju, rúmgóða stofu með útgengi á svalir, stórt svefnherbergi með fataherbergi, flísalagt baðherbergi og þvottahús, geymsla í kjallara. Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás, vönduð tæki. Gólfhiti. Sér merkt bílastæði á lóð. Birt stærð íbúðar er 77,8fm, geymsla í kj. 10,7fm, samtals birt stærð 88,5fm.

NÁNARI LÝSING:

Anddyri er rúmgott með fataskáp upp í loft, innfelld lýsing.

Stofa/borðstofa bjart og rúmgott parketlagt rými með útgengi á rúmgóðar vestur svalir með glerhandriði, fyrirliggjandi eru teikningar og samþykki fyrir svalalokun. Opið frá stofu/borðstofu inn í eldhús.

Eldhús er með eyju með innbyggðum bakarofni, örbylgjuofni og uppþvottavél, innrétting frá Brúnás sem nær upp í loft með miklu skápaplássi, gufugleypir, parket á gólfi.

Hjónaherbergi er rúmgott með innréttuðu fataherbergi innaf, vandað teppi á gólfum.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósum 30x60 flísum, skápainnrétting, upphengt wc, handklæðaofn, flísalagður walk-in sturtuklefi með sturtugleri.

Þvottaherbergi er innréttað með skápum, ljósar flísar á gólfi.

Sameign er mjög snyrtileg, vandaðar flísar á gólfum í anddyri, inn að lyftu og niður í kjallara, gólf geymslu og geymsluganga eru máluð með epoxy málningu.

Bílastæði er sérmerkt á lóð, tengimöguleikar fyrir raftengi.

Gólfhiti er í allri íbúðinni. Svalir eru 11,3fm. Nóg af auka bílastæðum á lóð. Snjóbræðsla í göngustígum framan við húsið. Glæsilegt leiksvæði ásamt fótboltavelli fyrir utan húsið.

Húsið er byggt árið 2019 af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf.

Hönnuðir: Arkitektar: Guðmundur Gunnlaugsson (Archus) og Gunnar Páll Kristinsson (Rýma arkitektar). Verkfræðihönnun: Teiknistofa Þráinn & Benedikt. Raflagnahönnun: Tesla rafmagnshönnun.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Kort af Naustavör 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu