Urriðalækur 18
01-0101 · 800 Selfossi



23 dagar á sölu
75.500.000 kr
653.680 kr/m²
ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Fallegt og skemmtilega hannað parhús í nýlegu hverfi á Selfossi.
Húsið er timbuhús, klætt að utan með litaðri báru, þak er einhalla klætt með bræddum tjörupappa.
Heildarstærð eignarinnar er 115,5m2 og skiptist hún skv teikningu í forstofu, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi stofu og eldhús auk 21,8m2 sambyggðs bílskúrs.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð og þaðan er innangengt í bílskúr.
Hjónaherbergi er parketlagt og þar er góður fataskápur.
Barnaherbergi er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og þar er gólfsturta og góð innrétting.
Þvottahús er innaf baðherbergi, flísar eru á gólfi og þar er góð innrétting.
Stofa og eldhús eru í opnu parketlögðu rými, snyrtileg innrétting er í eldhúsi en í stofu er útgengt á sólpall á baklóð.
Bílskúr er fullmálaður.
Stór pallur með skjólveggjum og heitum potti er á baklóð, innkeyrsla er hellulögð.
Í heildina er um að ræða snyrtilegt og fullbúið parhús í góðu hverfi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





























