HÚSASJÁ

Hverfisgata 85

01-0211 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

71 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

2275 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



156 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

980.365 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

-Frábær staðsetning í miðbænum

-Einkastæði í bílakjallara

-Þvottahús innan íbúðar

-Suður svalir

Eignin er tveggja herbergja á annarri hæð og skráð 71,3 fm samkvæmt HMS.

Húsið er byggt árið 2019 og er íbúðin stílhrein og nútímaleg.

Vinnubrögð eru vönduð, lofthæð góð og innbyggð lýsing.

Steinborðplata er á eldhúsinnréttingu og baðherbergi.

Íbúðin er parketlögð í alrými og í svefnherbergi en flísalögð í forstofu og á baðherbergi.

Eldhúsinnrétting er ljós með bakaraofni, spanhelluborði og innfelldri uppþvottavél.

Fyrir ofan helluborð er upphengdur háfur með lýsingu.

Sameiginlegur garður er snyrtilegur og með litlu leiksvæði.

Myndavéladyrasími er fyrir anddyri.

Svalir eru hlýlegar og timburklæddar og restin af húsinu er með álklæðningu.

Nánari upplýsingar veita:

Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing á eign:

Sérinngangur af svalagangi.

Gengið er inn í forstofu sem er flísalögð og með góðum fataskápum.

Eldhús er opið til borðstofu og stofu. Stílhrein og vönduð hvít innrétting með steinborðplötu og innfelldri uppþvottavél. Eyja með spanhelluborði og háf yfir.

Stofan er björt og opin með útgengi út á suður svalir. Parket á gólfi.

Svefnherbergi er parketlagt og með góðu skápaplássi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta flísalögð og afmörkuð með gleri. Ljós innrétting með steinborðplötu og geymsluskúffum ásamt vaski. Speglaskápur er fyrir ofan vaskinnréttingu. Innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn og upphengt salerni.

Sérgeymsla er í sameign og er 12,3 fm. Geymslugangur er með lökkuðum gólfum.

Sameign er afar snyrtileg með lyftu sem gengur niður í bílakjallara.

Vagna- og hjólageymsla er einnig í sameign.

Frábær staðsetning í miðborg Reykjavíkur þar sem stutt er í verslanir, kaffihús, veitingastaði, menningu og alla helstu þjónustu.

Íbúðin hentar vel fyrir þá sem vilja lifa í hjarta borgarinnar í nútímalegri og vel skipulagðri eign.

Sæbraut í göngufæri sem er vinsæl göngu-, hlaupa- og hjólaleið með frábæru útsýni yfir sjóinn.

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Hverfisgata 85

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25
Hverfisgata 85, 01-0211 | Húsasjá