HÚSASJÁ

Hverfisgata 85

01-0203 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

58 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

2275 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



91 dagar á sölu

sell

65.900.000 kr

1.144.097 kr/m²

EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING*

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir  2.herbergja 57.6 m2 íbúð merkt 02-03 í nýlegu lyftuhúsi í miðbæ Reykjavíkur.  Íbúðinni fylgir bílastæði í kjallara merkt 203.  Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 57.6 m2 þar af er 10,8 m2 sérgeymsla í sameign.

Íbúðin  skiptist í forstofu/anddyri, alrými með eldhúsi, 1 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.

Nánari lýsing.

Forstofa með góðum fataskáp og parketi á gólfi.

Eldhúsið er opið inn i stofu með fallegri hvítri innréttingu með efri og neðri skápum með granít borðplötu, helluborð og vifta, litil uppþvottavél.

Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir til vesturs.

Baðherbergi með flísalögðu gólfi og hluta til á veggjum , hvít innrétting með efri skápum með speglahurðum, handklæðaofn, walk-in sturta og opnanlegur gluggi.

Svefnherbergi með tveimur rennihurðum og fataskáp á heilum vegg, gluggar á tvo vegu, parket á gólfi.

Geymsla með máluðu gólfi.

Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.

Frábærlega staðsett íbúð í fallegu fjölbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur. Skjólgóður inngarður og gönguleiðir eru hannaðar af landslagsarkitekt hússins. Hverfið liggur ákaflega vel við samgöngum og styður vel við bíllausan lífsstíl fyrir þau sem það kjósa.

Tvö stigahús með lyftum eru í húsinu. Innkeyrsla í bílakjallara er um inngötu frá Vitastíg.  Í húsinu eru tvær kjallarahæðir með bílastæðum og geymslum. Burðarvirki hússins er steinsteypt, veggir einangraðir að utan og klæddir með álplötum, steyptum plötum og viðarklæðningu. Hluti jarðhæðar og kjallara er einangraður að innan og múrhúðaður.

Húsgjöld eignarinar eru 20.682 kr á mánuði, innifalið í húsgjöldum er allur almennur rekstur, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, húseigandatrygging, rafmagn í sameign, þrif sameignar og þjónustukaup af Rekstrarumsjón. Engar fyrirhugaðar eða samþykktar framkvæmdir eru á vegum húsfélags.

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Kort af Hverfisgata 85

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Hverfisgata 85, 01-0203 | Húsasjá