HÚSASJÁ

Trilluvogur 9

01-0105 · 104 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

189 m²

Stærð

3

Herbergi

4

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2019

Byggingarár

2605 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



225 dagar á sölu

sell

139.900.000 kr

715.235 kr/m²

Kjöreign  fasteignasala kynnir: Trilluvogur 9,  nýlegt og fallegt 189,2 fm endaraðhús með aukaíbúð í hinu nýja Vogahverfi í Reykjavík. Húsinu tilheyra tvö stæði í lokaðri bílageymslu. Húsið er á þremur hæðum.   Í aðalrými  eða á 2 og 3 hæð eru 3 svefnherbergi, sjónvarpsrými, stofa, eldhús og þvottahús. Íbúð á 1. hæð  er með einu svefnherbergi stofa/eldhús í opnu rými og baðherbergi. ATH Seljandi er tilbúin að skoða skipti á minni eign á höfuðborgarsvæðinu og/eða suðurlandi.

Nánari lýsing

1. hæð / götuhæð, aukaíbúð með sér inngangi.

Forstofa er flísalögð með fataskáp.  Við forstofu er aukaíbúðarrými.  Opið rými með parketi á gólfi og fallegri innréttingu með tækjum.  Baðherbergið er flísalagt með innréttingu með steini í borðplötu og steyptri sturtu með glervegg.  Svefnherbergið er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum

Inn af forstofu er gengið inn í rúmgott þvottahús, en þaðan er hurð út í bílakjallara þar sem geymslugangurinn er einnig. Gengið er inn í íbúðinna frá götu.

2. hæð / aðalinngangur.

Forstofa er flísalögð með fataskápum.  Inn af henni er eldhús með fallegri hvítri innréttingu og parketi á gólfi.  Þaðan er útgengt út á sérafnotaflöt sem snýr til suðurs.  Stofan er með parketi á gólfi og gólfsíðum gluggum. Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, handklæðaofni og steyptri sturtu með glervegg. Gengið er inn í íbúðina garðmegin. Sér afnotareitur.

3. hæð.

Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum og fataskáp.  Einnig er þar sjónvarpshol með parketi á gólfi og útgengt er út á suðursvalir.  Mögulega hægt að gera fjórða herbergið þar.  Baðherbergi er á hæðinni með fallegri innréttingu, handklæðaofni og baðkari. Svalir út frá þessari hæð.

Sérgeymsla íbúðarinnar er í sameign ásamt sameiginlegum rýmum.  Skv. eignaskiptayfirlýsingu fylgja bílastæði í bílageymslu merkt B35 og B36 eigninni.

Birtar stærðir : íbúð á jarðhæð 59.6 fm. íbúð á annarri og þriðjuhæð 120 fm og geymsla 9,6 fm samtals 189,2 fm

Nýlegt vel skipulagt hús með útleigumöguleika sem er við útivistaperlur Reykjavíkur, Elliðaárdalinn, Smábátahöfnina og Laugardalinn.

Leikskóli er komin í hverfið.

Seljandi er tilbúin að skoða skipti á minni eign á höfuðborgarsvæðinu og suðurlandi.

Með tilkomu nýrrar brúar verður til ný göngu- og hjólaleið milli Tranavogs og Snekkjuvogs. Brúnni er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir skólabörn í Vogaskóla.

Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða á kjoreign@kjoreign.is

Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða asta@kjoreign.is

Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða dan@kjoreign.is

Kort af Trilluvogur 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25