HÚSASJÁ

Bogabraut 952A

01-0106 · 262 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

95 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1969

Byggingarár

4527 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla



131 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

525.817 kr/m²

Glæsileg og rúmgóð 3ja herbergja mikið endurnýjuð íbúð með nýlegum sólpalli við Bogabraut 952A í Reykjanesbæ. Sérmerkt bílastæði á bílaplani. Eignin getur verið laus fljótlega.

Eigin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 94,9fm. og þar af er geymsla 3,6fm.

Nánari lýsing:

Forstofa góðu skápaplássi og flísar á gólfi.

Hol með góðu skápaplássi með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi.

Eldhús með fallegri innréttingu, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél, eldhúseyja sem hægt er að sitja við, helluborð, háfur og flísar á gólfi. Í eldhúsinu er gólfhiti.

Stofa rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er úr stofunni út á nýlegan sólpall með hliði.

Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.

Baðherbergi með innangengri sturtu, nýlegum blöndunartækjum, handklæðaofni, nýlegt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt gólf og veggir.

Sérgeymsla á hæð íbúðar fylgir eigninni skráð 3,6fm.

Sérmerkt bílastæði fyrir íbúðina er á bílaplani fyrir framan húsið.

Innangengt er inn í húsið bæði að framan og aftan við húsið.

*Nýleg gólfefni

*Endurnýjað eldhús

*Baðherbergi endurnýað

*Nýlegar innihurðar

Múrkerfi utan á húsinu hefur verið endurnýjað og pússað í hvítum lit.

Sameiginleg tengigrind með upphitun á neysluvatni og ofnakerfi er í húsinu frá Danfoss en með því er hægt að tölvustýra notkun til sparnaðar á heitu vatni.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Bogabraut 952A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32