HÚSASJÁ

Davíðshagi 8

01-0206 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
15 myndir

54 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

1955 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla



84 dagar á sölu

sell

47.500.000 kr

868.373 kr/m²

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Davíðshagi 8 - 206

**Laus við kaupsamning**

Góð tveggja herbergja íbúð á annari hæð í lyftuhúsi nyrst í Hagahverfi. Eignin er samtals 54,7 fm. en þar af er geymsla í sameign 3,6 fm..

Aðalinngangur er um lyftuhús, en húsið er stallað um hálfa hæð sitt hvoru megin við inngang. Gengið er inn í íbúðina af svalagangi á norðurhlið, en á suðurhlið eru svalir. Á jarðhæð hússins er sameignarrými, með sameiginlegri vagna- og hjólageymslu ásamt sér geymslu.

Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi og eldhús og stofu í sameiginlegu rými.

Forstofa er með parket á gólfi og skáp á gangi.

Svefnherbergið er við forstofu með parket á gólfi og föstum rúmgóðum skápum.

Eldhús og stofa er í sameiginlegu rými með parket á gólfi. Eldhúsinnrétting er dökk með stæði fyrir uppþvottavél, góðu skápaplássi og svörtum flísum milli efri og neðri skápa. Úr stofu er gengið út á verönd um rennihurð.

Baðherbergi er með svartar flísar á gólfi og hvítar á veggjum, sturtu með vængjahurðum, upphengt salerni og góðri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara.

Annað:

-Vel skipulögð íbúð

-Gólfhiti í allri íbúðinni

-Öndun við rennihurð í stofu

-Bílastæði eru bæði norðan og vestan við húsið.

-Lyfta er í húsinu

-Ljósleiðari

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

berglind@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955

Kort af Davíðshagi 8

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð