HÚSASJÁ

Sunnusmári 22

02-0506 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
37 myndir

83 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

3188 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr



10 dagar á sölu

sell

81.900.000 kr

992.727 kr/m²

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan fasteignasala kynna stórglæsilega 3ja herbergja íbúð á 5. hæð með tvennum svölum í nýlegu fjölbýlishúsi við Sunnusmára 22, Kópavogi.Gott útsýni í þrjár áttir, t.d. fallegt útsýni í vestur, út yfir Kópavoginn og til sjávar. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými með eldhúseyju við borðstofu og stofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er 4 fm sérgeymsla. Stæði í lokuðum bílakjallara fylgir með eigninni.

Íbúðin er falleg og björt á eftirsóttum stað í Kópavogi þar sem stutt er í Smáralind, alla helstu þjónustu, verslanir, skóla og stofnbrautir.

Aðkoman að húsinu er mjög snyrtileg og sameign til fyrirmyndar. Myndavéladyrasími er í húsinu.

Íbúðin er merkt 506 og er 82,5 fm að stærð og þar af sérgeymsla 4 fm.

Rúmgóðar svalir eru ekki taldar með í fermetratölunni.

Nánari lýsing:

Forstofa með góðum fataskápum.

Hol/gangur. Gengur í gegnum íbúðina.

Svefnherbergi er með parketi og fataskápum

Eldhús og stofa eru í fallegu opnu rými. Hvítar stílhreinar innréttingar, eldhústæki af gerðinni Siemens, spanhelluborð og ofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél. Eldhúseyja og innrétting með góðu skápaplássi.

Borðstofa - og stofa er með útgengt út á svalir.

Svefnherbergin eru tvö, með fataskápum.

Svefnherbergi I: vestanmegin er með útgengt út á þaksvalir 17,6 fm. með glæsilegu útsýni.

Svefnherbergi II: er nýtt sem sjónvarpsherbergi.

Baðherbergi er með fallegri innréttingu með góðu skúffuplássi, upphengt salerni og handklæðaofn. Sturta er með glerþili. Mora blöndunartæki frá Tengi.

Gólf og veggir flísalagt. Innrétting og tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Íbúðin er með fallegu parketi. Innréttingar og skápar frá MITON / Cubo Design. Eldhúseyja frá Parka.

Sérgeymsla er staðsett í sameign 4 fm. ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Sérstæði í bílakjallara, tengi fyrir hleðslustöð. Einnig er hleðslustöð opin öllum íbúum á sameiginlegu bílastæði við aðalinngang.

Bluetooth hitastýring.

Falleg íbúð á eftirsóttum stað í Kópavogi. Stutt í alla helstu þjónustu og stofnbrautir.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Sunnusmári 22

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37
Sunnusmári 22, 02-0506 | Húsasjá