Goðanes 7A
01-0101 · 603 Akureyri



162 dagar á sölu
26.900.000 kr
495.396 kr/m²
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Goðanes 7a - Nýlegt og vel staðsett geymsluhúsnæði með stórri innkeyrsluhurð og millilofti.
Húsið er byggt árið 2021 og skráð 54,3 m² auk millilofts.
** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **
Burðarvirki hússins eru steinsteyptar undirstöður/gólf ásamt timburvirki (límtré) í veggjum og þaki. Útveggir og þak eru klæddir með PIR samlokueiningum.
Gólf er lakkað með ljósu epoxy efni.
Eignin er 4,5 - 6,3 m á breidd og um um 9 m á dýpt
Innkeyrsluhurð er um 3,6 metrar á hæð og með rafdrifnum opnara.
Sér gönguhurð.
Milliloftið er um 27 m².
Snyrting er með upphengdu wc, handlaug og opnanlegum glugga.
Annað
- Gólfhiti
- 3ja fasa tengill
- Á eigninni hvílir vsk-kvöð og er gert ráð fyrir að hún sé yfirtekin auk kaupverðs, þ.e. kaupverð er tiltekið án vsk kvaðar. Staðan á kvöðinni þann 4.6.2025 var kr. 2.210.667.-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





