HÚSASJÁ

Hafnarstræti 106

01-0201 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

149 m²

Stærð

3

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1915

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Friðað



124 dagar á sölu

sell

129.000.000 kr

864.611 kr/m²

Remax fasteignasala kynnir:  Gistiheimili á frábærum stað að Hafnarstræti 106, Akureyri.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og samanstendur af þremur fullbúnum íbúðum með svefnrými fyrir 4-6 manns hver.

Íbúðirnar eru á einu fastanúmeri og eru frá 40-50 fm. hver, samtals birt stærð eignar 149,2 fm.

Allar íbúðir eru með einu svefnherbergi og auka svefnlofti fyrir amk 1-2 manns. Íbúðir eru búnar húsgögnum og húsbúnaði á besta stað í miðbæ Akureyrar.

Rekstrarleyfi er á eigninni, Gististaði - Flokki II.

Brand, leyfi og húsbúnaður fylgir með í kaupunum.

Nánar: Umrædd eign samanstendur af þremur tveggja herbergja gistieiningum með svefnlofti á efri hæð í tveggja hæða timburhúsi.

Einnig gangur, ræsting (rými 0201) og 56,8 fm. timburverönd (rými 0202). Eigninni fylgir hlutdeild í lóð. Aðkoma er bakatil, upp frá austurlóð.

Ytra byrði húss ásamt burðarvirki svo og sameiginlegar lagnir eru sameign allra.

Húsið var byggt upphaflega 1915 en hefur verið mikið endurnýjað og hannað í gamla stílnum.

Allt innefni og einangrun endurnýjað, í útveggjum, lofti og gólfi. Burðarvirki metið og styrkt, útveggir einangraðir með steinull ásamt þaki og rekasperra í hús.

Gólf milli hæða endurbyggt að mestu leyti og rétt af, lektur og 22 mm gólfplötur.

Nýjar skólplagnir í húsið og út í brunn.

Allt rafmagn endurnýjað. Gluggar, þakgluggar og hurðir endurnýjaðar.

Allir innveggir endurgerðir, spónarplötur og gips í inn og útveggi. Timbur endurnýjað að hluta. Nýr tjörupappi og lektur utanhúss. Utanhússklæðning endurnýjað með bárujárnsklæðningu.

Einnig erum við með á sölulista heila stigaganga með íbúðum / herbergjum.

Rekið undir merkjum Acco Luxury Apartments

https://acco.is/acco-luxury-apartments/

Skipagata 2: 3 íbúðir

Skipagata 4: 3 íbúðir

Skipagata 4: Atvinnurými fyrir veitingastað

Ráðhústorg 5: 3 íbúðir

Rekið undir merkjum Acco Town Square Apartment

https://acco.is/acco-town-square-apartments/

Ráðhústorg 3: 4 íbúðir

Rekið undir merkjum Acco Guesthouse

https://acco.is/acco-guesthouse/

Gistiheimil Súlur, 11 herbergi

Frekar upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Kort af Hafnarstræti 106

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð