Gerplustræti 19
01-0301 · 270 Mosfellsbæ



11 dagar á sölu
92.900.000 kr
805.724 kr/m²
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 115,3 m2, 4ra herbergja endaíbúð með glæsilegu útsýni á 3. hæð, ásamt bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Gerplustræti 19 í Mosfellsbæ. Frábær staðsetning rétt við Helgafellsskóla. Stutt í fallegar gönguleiðir.
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla er í kjallara og bílastæði í bílageymslu. Rúmgóðar svalir með epoxy á gólfi og svalalokun. Fallegar innréttingar og gólfefni. Gott skipulag.
Eignin er skráð 115,3 m2, þar af íbúð 103,6 m2 og geymsla 11,7 m2. Bílastæði í bílageymslu merkt B14 fylgir eigninni. Búið er að leggja rafmagn í öll stæði í bílakjallara með álagsstýringu til að hlaða bíla í bílageymslunni. Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, handklæðaofni, vönduð innrétting og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús er mjög rúmgott með vandaðri innréttingu sem nær til lofts og stórum glugga. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, ofn, helluborð og háfur. Opið er á milli eldhúss og stofu.
Stofa og borðstofa eru inn af eldhúsi með gluggum á tveimur hliðum með glæsilegu útsýni sem gerir rýmið mjög bjart og skemmtilegt. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir til suðursmeð epoxy á gólfi og svalalokun. Glæsilegt útsýni.
Sérgeymsla er rúmgóð með hvítri innréttingu í kjallara hússins.
Bílastæði í bílageymslu með aðgengi frá lyftu - stigahúsi. Sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Stigahúsið er snyrtilegt og vandað með góðum flísum í anddyri og kjallara en teppi á stigahúsi.
Utanhúss er fasteignin álklædd vandaðri klæðningu og því viðhaldslítil. Snjóbræðsla er undir gönguleiðum.
Verð kr. 92.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






























