HÚSASJÁ

Álalækur 13

01-0304 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

99 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2019

Byggingarár

1980 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



494 dagar á sölu

sell

63.700.000 kr

644.085 kr/m²

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða opna og skemmtilega 98,9 fm 4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð í snyrtilegu fjölbýli með miklu óhindruðu útsýni, lyfta er í húsinu. Húsið er álklætt að hluta. Svalirnar eru mjög rúmgóðar og eru ca 19 fm og hafa margir yfirbyggt þær. Rafhleðslustöðvar á bílaplani. Stutt er í leik- og grunnskóla og aðra almenna þjónustu.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Forstofa er með harðparketi á gólfi og skápum.

Stofa er með harðparketi á gólfi og útgengt á stórar suðursvalir með viðarfjölum á gólfi.

Eldhús er með harðparketi á gólfi og hvítri snyrtilegri innréttingu.

Svefnherbergin eru 3 og eru með harðparketi á gólfi og skápum.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og panelflísum á veggjum, upphengt wc, skúffur undir vask, sturtuklefi og handklæðaofn.

Þvottahús innan íbúðar er með flísum á gólfi og vask.

Geymsla er í sameign á jarðhæð.

Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Álalækur 13

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð